um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Núna held ég að væri þjóðráð að hæstv. forseti Alþingis beitti lagni við að reyna að semja hér eitthvað um framhald þingstarfanna frekar en að gera þetta með þessum hætti. Ástæðan fyrir því er að mér sýnist andrúmsloftið hér í salnum kalla svolítið á það. Það hefur ekkert skort á neinn vilja stjórnarandstöðunnar til að ræða hér um framgang þingmála. En það sem ég vildi gera að umtalsefni mínu hér er að þegar við vorum að ræða um atkvæðagreiðsluna óskaði ég eftir því að fá að gera grein fyrir atkvæði mínu, en forseti fór úr þeim lið án þess að hleypa mér upp. Ég ætla ekki að gera honum það upp að hann hafi gert það viljandi, en í það minnsta fékk ég ekki að gera þó það sem ég átti rétt á, svona í samhengi við það hvort endurtaka eigi atkvæðagreiðsluna eða ekki.