152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

um fundarstjórn.

[12:46]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis hefur forseti í rauninni ekki val um það hvort hann endurtaki atkvæðagreiðsluna. Það stendur ekki í þingsköpum Alþingis að ef ósk hefur borist um það frá þingmanni að atkvæðagreiðslan verði endurtekin þá skuli hún gerð ef forseti metur það svo. Það stendur ekki í þingsköpum. Ég endurtek: Ekki. Það stendur einfaldlega að atkvæðagreiðsla skuli endurtekin ef ósk berst um það frá þingmanni. Það er fortakslaust. Ég þreytist ekki á að árétta hér í þingsal mikilvægi þess að Alþingi Íslendinga fari að lögum, að landslögum. Það á líka við um hæstv. forseta þingsins.