um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég endurtek að gefnu tilefni að í 5. mgr. 80. gr. þingskapalaga stendur að endurtaka megi atkvæðagreiðslu þótt úrslitum hennar hafi verið lýst ef forseti telur ástæðu til þess eða ósk berst um það frá þingmanni. Nú hefur virðulegi forseti neitað að verða við þeirri ósk sem hér er borin fram. Þá er mér spurn, virðulegi forseti: Ef forseti getur tekið þingskapalög og túlkað þau bara á eigin máta, hvaða öðrum hlutum megum við þá hætta að fylgja í þingsköpum? Þurfum við t.d. að fylgja reglum um ræðutíma? Þurfum við t.d. að hætta að vera með frammíköll? Ég spyr bara. Ef hæstv. forseti getur tekið sér það vald að brjóta þingsköp, gildir það líka um aðra þingmenn?