152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

um fundarstjórn.

[12:48]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég hef nú bara aldrei vitað til þess að ekki sé hægt að kalla eftir því að endurtaka atkvæðagreiðslu. Ég hef aldrei heyrt forseta segja að það þurfi að færa einhverjar röksemdir fyrir því að við biðjum um það. Það eru ýmis mistök sem verða hérna í salnum þegar við erum að greiða atkvæði. Svo má líka taka til greina að kannski hefur einhver skipt um skoðun eftir að hann heyrði — ja, ég var með síðustu ræðuna hérna um atkvæðagreiðslu, kannski skipti einhver um skoðun eftir að hafa heyrt mig tala hérna í pontu og rökstyðja mitt atkvæði.

Ég tek undir þá beiðni að forseti komi með rökstuðning fyrir þessari ákvörðun af því að mér sýnist þetta, og öðrum hér inni, vera brot á þingskapalögum. Hvað gera þingmenn þegar forseti brýtur þingskapalög? Hvað getum við þá gert? (GRÓ: Kosið nýjan.) Hvað gerist þá? Hverjar eru afleiðingar þess? Ég krefst þess að það komi einhvers konar rökstuðningur eða minnisblað með einhverjum lagalegum rökum fyrir því að atkvæðagreiðslan verði ekki endurtekin þegar þingmaður fer fram á það og biður sannarlega um það. Þetta þykir mér bara algerlega út úr kú. Ég vil líka fá að vita hvað við eigum að gera í svona tilfelli þar sem forseti ákveður að fara þessa leið.