152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

um fundarstjórn.

[12:50]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil minna á að þegar það voru gerðar hér ýmsar breytingar á þingskapalögum árið 2007 var sett inn sérstakt ákvæði einmitt til að hnykkja á þessum rétti þingmanna til að óska eftir því að atkvæðagreiðsla yrði endurtekin. Mig langar að lesa hérna aðeins upp úr lögskýringargögnunum, upp úr greinargerð:

„Loks er sett inn ákvæði um hvenær endurtaka má atkvæðagreiðslu eftir að úrslitum hennar hefur verið lýst. Reynslan sýnir að oft getur verið þörf á að endurtaka atkvæðagreiðslur en mikilvægt þykir að hafa um slíkt skýr fyrirmæli, einkum hvaða takmarkanir skuli vera á því.“

Mig langar að óska eftir því við hæstv. forseta, mig langar að fá svör við því hvort hann þekki einhver fordæmi þess að forseti Alþingis bregðist við beiðni um endurtekningu atkvæðagreiðslu á þennan hátt, biðji um rökstuðning og neiti svo þeirri beiðni. Man hæstv. forseti, sem er kannski meðal þeirra þingmanna hér í salnum sem eru með mestu þingreynslu, eftir því að slík atvik hafi áður komið upp frá því að þetta var lögfest (Forseti hringir.) með svona afgerandi hætti, þessi réttur þingmanna til að kalla eftir endurtekningu?