152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:33]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessu og fagna því líka að forseti hafi farið þess á leit við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að flytja munnlega skýrslu um sölu Íslandsbanka í næstu viku. Eins og við vitum var viðhaft tilboðsfyrirkomulag til að fá fagfjárfesta að borðinu. Við höfum enn þá bara mjög takmarkaðar upplýsingar um það hverjir keyptu. Það liggur hins vegar fyrir að þrír innherjar tengdir stjórn og yfirstjórn Íslandsbanka voru í þeim hópi. Einn þeirra, sambýlismaður millistjórnanda í bankanum, kaupir hlut í gegnum eignarhaldsfélag sem er með neikvætt eigið fé upp á 135 millj. kr. og þar af eru 120 milljónir vegna skulda við tengda aðila. Þetta er eitthvað sem vekur upp spurningar um það hvernig fagfjárfestar voru valdir. Þetta og ýmislegt fleira er eitthvað sem við þurfum að ræða hérna í þessum þingsal. Þess vegna fagna ég því mjög að forseti hafi gengið rösklega til verks eftir umræðuna hér í gær og orðið við beiðninni um að þetta verði allt saman rætt hér í þingsalnum.