152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[13:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég missti af umræðunni vegna veikinda þannig að ég er mjög ánægður með að hún sé enn þá í gangi, ég er heppinn. Það er ekkert sjálfsagt við það. Þessi fjáraukalög eru dálítið áhugaverð að því leyti til að þetta er enginn fjárauki, bara tilfærsla á fjármunum og á fjárheimildum á milli ráðuneyta og stofnana. Nettóbreytingin þegar allt kemur til alls er núll, engin viðbót í fjárveitingar. Þetta er vegna breytinga á Stjórnarráðinu, áherslu ríkisstjórnarinnar á að brjóta niður ósýnilega veggi stjórnsýslunnar sem ætti kannski að spara eitthvað en gerir það alla vega ekki enn þá. Það eru ekki komnar fram neinar útskýringar á því hversu mikið umfang þess gæti verið en við fengum kynningu um eftirlit með framkvæmd fjárlaga í fjárlaganefnd í síðustu viku frá tveimur ráðuneytum þar sem var farið yfir veikleika í framkvæmd fjárlaga, þ.e. fjárheimildir þar sem vantar pening. Sums staðar er í rauninni of mikið af fjárheimildum. Ef ég byrja á almannatryggingum þá er þar gert ráð fyrir 5 milljarða kr. afgangi af örorkugreiðslum á málefnasviði 27. Eins og segir hérna, með leyfi forseta, er það fyrst og fremst vegna lægri útgjalda síðasta árs þar sem fækkaði í hópi öryrkja og endurhæfingarlífeyrisþega. Þar af leiðandi er upphafsstaða ársins 3 millj. kr. lægri en ella. Ég held að það sé rangt, það eigi að vera þarna milljörðum krónum lægri en ella. Þarna kemur t.d. afgangur. Það er áhugavert að skoða þetta í samhengi við skýrslu um langtímahorfur og þá stefnubreytingu sem var gerð fyrir ekki svo löngu síðan um að koma fólki frekar á endurhæfingarlífeyri fyrst og fullreyna það úrræði. Kannski eru þetta einmitt áhrifin af því. Það væri mjög jákvætt ef svo væri. En það er ekki fjallað neitt sérstaklega nánar um það sem mér finnst bagalegt því að þetta er eitthvað sem ætti að flokkast sem aðhaldsverkefni. Í fjárlögum er oft sett 2% aðhaldskrafa á málefnasvið og hefur verið sett á almannatryggingar líka, sem er mjög skrýtið. En ef það er þannig t.d. að áhersla á endurhæfingu getur valdið því að varanleg örorka minnki þá er það að sjálfsögðu jákvætt og er í rauninni aðhaldsaðgerð og ætti að vera merkt sem slík en er það ekki, sem er athyglisvert út af fyrir sig.

Þegar kemur að fjáraukalögum eru nokkur skilyrði fyrir því að leitað sé eftir fjárauka. Það er sérstaklega tekið fram í stjórnarskránni að það megi ekki greiða neitt nema fjárheimild sé fyrir því í fjárlögum eða fjáraukalögum. Það sem hefur verið gert hins vegar er að það hefur oft verið leitað eftir fjárheimild eftir á. Ég geri athugasemd við það að nokkru leyti. Ég skil það varðandi þessi lögbundnu útgjöld, eins og t.d. atvinnuleysistryggingar, að það sé leitað eftir slíkum fjárheimildum eftir á. Ég skil það alveg. Það er bara skylda að greiða. Það er gott að þingið sé upplýst um það jafnóðum hvernig sú fjárheimild er að þróast því það getur breyst milli mánaða, allt í einu er fullt af fólki sem fær ekki atvinnu eða missir atvinnu og það er dálítið flókið fyrir ríkisstjórn að koma alltaf hlaupandi og biðja um fjárheimild út árið þegar þetta breytist svona snögglega. Annað er hins vegar fyrirsjáanlegt á öðrum forsendum, ekki vegna þess að það er bara skylda að greiða slíkar fjárheimildir heldur liggur vandinn annaðhvort í vanáætlun eða jafnvel stefnuákvörðun stjórnvalda í einhverjum tilfellum. Við sjáum ábendingar um rekstrarvanda sem var þegar búið að vara við, t.d. að gjöld vegna NPA-þjónustu gætu farið 130 millj. kr. umfram heimildir til að standa við ákvæði laga um fjölgun samninga. Þetta var algerlega fyrirsjáanlegt. Það var meira að segja gerð breytingartillaga um þetta í fjármálaáætlun síðast, ef ekki fjárlögum líka, sem var hafnað. Það er áhugavert. Sama með fjárheimild vegna niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Það eru lög um að það eigi að niðurgreiða slíka þjónustu. Það eru lög um réttindi fólks til að fá þá þjónustu en einhverra hluta vegna er þeirri þjónustu hætt þegar fjárheimildin er búin. Það er ekki gert með atvinnuleysistryggingar ef fjárheimildin er búin, það er ekki sagt: Við hættum að borga atvinnuleysistryggingar. En það er gert með niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Það er gert með NPA-samninga þrátt fyrir að í bráðabirgðaákvæðum laga um þá þjónustu sé tilgreint hversu marga samninga á að greiða. Það eru einfaldlega ekki gefnar fjárheimildir til að dekka það marga samninga. Þetta vitum við og þrátt fyrir að við vitum þetta og þrátt fyrir að það sé fyrirsjáanlegt að það komi beiðni um fjárheimild vegna þessara atriða í fjáraukalögum seinna á árinu þá kemur mér það dálítið spánskt fyrir sjónir að við séum að afgreiða fjáraukalög núna þar sem þessu er sleppt. Við vitum að það eru ákveðnir veikleikar í stöðunni en það er samt ekki brugðist við í þeim fjáraukalögum sem hér eru til afgreiðslu heldur geymt þangað til seinna. Á meðan er ríkisstjórnin að nota fjárheimildir sem er ekki heimild fyrir í fjárlögum eða fjáraukalögum.

Það er ekki nóg að það sé bara heimild í lögum um að það eigi að veita hina og þessa þjónustu. Ég skil að það ætti að vera svoleiðis, það er samt ekki þannig. En ef reyndin er sú að við högum okkur þannig, ættum við þá ekki að reyna alla vega að endurspegla það? Við gætum annaðhvort haft það skýrt í t.d. lögum um atvinnuleysistryggingar að réttindin eru þar óháð fjárheimild í fjárlögum og þá líka um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu eða fjölda NPA-samninga. Það er í rauninni eitthvað sem þingið er að kvitta upp á sem nokkurs konar fjárlög. Eða eigum við að sinna því þá á þann hátt sem gert er ráð fyrir í núverandi lagafyrirkomulagi, í stjórnarskránni, að það sé leitað fjárheimilda fyrir fram?

Það er bagalegt að þetta sé gert svona því að ég hef þá tilfinningu, varðandi það hvernig fjárlagagerð er hagað hérna, að stundum sé ákveðnum fjárheimildum bara sleppt. Því sé bara sleppt að fjalla um ákveðnar fjárheimildir í fjárlögum til þess að láta það líta út þannig að ríkisreksturinn sé betri en hann í raun og veru er. Það gerist reglulega að það er verið að vanspá um hagvöxt eða hvernig gengur í þjóðarbúinu þannig að þegar allt kemur til alls í lok árs þá eru tekjurnar meiri heldur en var gert ráð. Þetta er algengt vandamál í hagspám. Það er verið að vanspá um vöxt og ofspá um hrun á móti. En þetta gerir það að verkum að það er ákveðinn freistnivandi sem er oft talað um í þessu samhengi, að sleppa því bara að tilgreina þessar fjárheimildir sem vitað er að þarf í rauninni að greiða út. Til dæmis hvað varðar lyf, það eru engar smáræðis upphæðir þar. Það var varað við þessum atriðum við afgreiðslu fjárlaga á síðasta ári. Samt kom ekki fjárheimild fyrir því. En þá líta fjárlögin betur út þegar árið klárast að lokum og þá er hægt að bæta þessu við og niðurstaðan er sú sama og hún var í rauninni kannski í upphafi árs nema bara að það sást aldrei í ferlinu hver raunveruleg staða var miðað við áætlanir um það hverjar fjárheimildirnar þyrftu að vera til að uppfylla hin ýmsu lög sem við höfum sett hérna sem snúast um réttindi fólks, t.d. niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu og NPA-samninga.

Ég geri þessar athugasemdir í 1. umr. um fjáraukalög af því að ég tel að þingið eigi tvímælalaust að fá þessar upplýsingar, bara eins berorðar og hægt er að hafa þær, um hver raunveruleg staða er á fjárheimildum varðandi ýmsa liði, t.d. NPA-samninga og niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, til þess að það sé hægt að gefa fjárheimildir fyrir þessum réttindum sem fólk hefur samkvæmt lögum. Það sem við gerum hérna, að samþykkja lög, veitir fólki réttindi. Framkvæmdarvaldið getur ekki skorast undan því að framfylgja þeim lögum. Hluti af því er að koma með mat á það hvað hin og þessi lög kosta og setja það fram í fjárlagafrumvarpi. Ef þar er um vanáætlun að ræða þá er það einfaldlega alvarlegt mál. Það hefur þau áhrif að það er réttindaskerðing fyrir fólk ef það er gert eins og með sálfræðiþjónustuna, öfugt við atvinnuleysistryggingarnar. Ef ekki er verið að framfylgja lögum af því að fjárheimildin er takmarkandi þá er einfaldlega verið að svindla á því sem Alþingi ákvað. Ef ríkisstjórnin er ekki tilbúin til að framfylgja þeim lögum sem Alþingi setur eða þingsályktunum eða hvernig sem það er þá á ríkisstjórnin einfaldlega að leggja fram lagabreytingar til þess að breyta þeim réttindum á einhvern hátt til að gera þetta hagkvæmara eða setja fram tillögur um aðra framkvæmd eða eitthvað því um líkt til að halda kannski sömu réttindum en á annan hátt. En það gerir hún ekki heldur leggur einfaldlega fram tillögu í fjárlögum um að ekki þurfi alla fjárheimildina til að uppfylla réttindin.

Ég tel það vera eitt af svona stærstu gagnsæisvandamálunum í afgreiðslu þingsins á fjárheimildum hverju sinni að við höfum í rauninni ekki hugmynd um hvað mörg þessi lög sem við höfum verið að samþykkja hérna kosta. Samt er kostnaðarmat með öllum lögum en svo hverfur það einhvern veginn, það bara gufar upp. Farsældarlögin, það var gert ráð fyrir 1,2 milljörðum í kostnað. Mig minnir að það sé kominn inn peningur upp á 800 milljónir úr jöfnunarsjóði eða eitthvað því um líkt, ekki 1,2 milljarðar. Það er kannski einhvers staðar annars staðar en var ekki varanlegt fjármagn, að því ég best veit. Þannig að allt þetta er rosalega ógagnsætt. Við þurfum að hafa ekki bara mat á áhrifum stjórnarfrumvarpa heldur viðvarandi mat. Það er það sem eftirlit með framkvæmd fjárlaga snýst um, viðvarandi mat á því hver kostnaðurinn er við lög sem við erum búin að setja. Hér eru lög um almannatryggingar. Þetta er áætlaður kostnaður þeirra laga samkvæmt ríkisstjórn þegar hún leggur fram frumvarp til fjárlaga. En það er ekki gert. Það er gríðarlega óheppilegt þegar við erum að reyna að skoða einhver verkefni eins og að ná fram meiri hagkvæmni. Við myndum vilja geta skoðað einstaka lagabálka til að greina það af hverju kostnaðurinn er svona mikill við þá. Þá getum við horft á það með miklu fókuseraðri hætti hvaða hluta laganna væri hægt að gera skilvirkari, jafnvel gera réttindin gagnsærri og nytsamlegri í rauninni fyrir þá sem þau eiga.

Það er heill hellingur hérna. Ég sendi alla vega þau skilaboð inn í fjárlaganefnd, þar sem ég tek við þeim sjálfur, að biðja um gagnsæi hvað þetta varðar til þess að við getum reynt að framkvæma lögin og stjórnarskrána eins og hún er, að við séum að samþykkja fjárheimildir fyrir fram en ekki eftir á.