152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[13:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans tölu. Mér þykja athyglisverðar þessar vangaveltur hans. Við erum ræða fjárlög. Þetta eru lög og í þeim eru skrifaðir inn einhverjir tilteknir liðir með metnum kostnaði og það er sá peningur sem á að eyða í þetta en hann nefnir þarna að það eru tilteknir liðir sem eru í raun og veru eins og opinn tékki. Það er skuldbinding í því að standa við það, alveg sama hvort það er innan heimilda fjárlaga eða ekki. Síðan eru aðrir liðir, eins og hv. þingmaður benti á, sem eru bara: Sorrí, peningurinn búinn. Mér finnst þetta vera tilefni til að velta vöngum yfir. Tiltekin þjónusta við einstaklinga er háð fjárlögum en síðan eru aðrir liðir sem geta farið fram úr. Ég nefni sem dæmi Allir vinna sem átti nú að vera fallið úr gildi en var síðan sett inn í fjárlögin. Það er svona opinn tékki sem við vitum ekkert hvar endar. Við erum komin með þrjá mánuði af árinu og maður hefði kannski viljað sjá einhverjar áætlanir um það sem gæti gerst í framhaldinu varðandi þessa liði sem eru einhvers konar opinn tékki, að fjárlaganefnd yrði alla vega gerð grein fyrir því hvernig þessir liðir stæðu. Manni finnst það skrýtið þegar veikt fólk þarf á heilbrigðisþjónustu eins og sálfræðiþjónustu að halda en fær hana ekki af því að það er ekki í fjárlögum.