152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[13:52]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Eins og ég sé fjárlögin skiptast þau í grófum dráttum í þrennt. Stærsti hlutinn er einmitt framkvæmd laga, lög um almannatryggingar, sálfræðiþjónustu, þessi verkefni sem Alþingi er samkvæmt lögum búið að fela framkvæmdarvaldinu, stjórnsýslunni að sinna. Langstærsti hlutinn af fjárlögum er bara sú fjárheimild sem þarf til að sinna þeim hluta. Síðan er það stefna stjórnvalda, þ.e. ætla stjórnvöld að gera eitthvað sérstakt, einhver átaksverkefni í hinu og þessu, einhver viðhaldsverkefni eða svoleiðis, til að gera samfélagið betra en það væri ef það væri engin ríkisstjórn og við værum bara að fylgja lögunum eins og þau eru? Þriðja er síðan eitthvað sem þingið bætir við aukalega, pínulítill hluti í rauninni, svona 10 milljónir í hin og þessi verkefni hingað og þangað um landið, gerð einhverra bóka eða eitthvað svoleiðis. Þessi þrískipting finnst mér rosalega mikilvægt að sé gagnsæ á báða vegu í rauninni, að það sé aðskilnaður á milli. Þessu er rosalega mikið grautað saman núna. Það veldur því, eins og hv. þingmaður talar um, að hlutir eins og Allir vinna verða rosalega óljósir í öllu fjárlagaferlinu og eftirfylgni með úrræðinu, svo ég minnist ekki á t.d. úrræðið Hefjum störf sem var í fyrravor og átti að kosta 5 milljarða eða eitthvað svoleiðis og endar síðan í einhverjum 10 milljörðum umfram sem er bara algerlega fáránlegt. Ég ætla ekki að gera lítið úr því verkefni en hvernig var farið með fjárheimildir í því, (Forseti hringir.) hvernig var í rauninni bara logið að þinginu um það hversu mikið það myndi kosta er rosalega alvarlegt og er ástæðan fyrir því að við þurfum einmitt að krefja stjórnvöld um að leita fjárheimilda fyrir fram.