152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[13:55]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni þetta. Hann nefndi líka í sinni tölu að gera áætlanir og áætla í verkefnin fyrir fram en ekki eftir á, að nú sé verið að koma með inn á borð þingsins útgjöld sem eru sett í gang og verkefni sem eru sett í gang og svo samþykkir þingið eftir á. Þetta eru vinnubrögð sem eru svolítið sérstök.

Mig langar að nefna að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra nefndi í einhverjum fjölmiðlum nýverið að það gæti komið til skoðunar að fjölga rafmagnsbílum, niðurgreiðslu á þeim, um 5.000 bíla. Góðra gjalda vert en auðvitað fylgja því útgjöld. Ég held að nefnt hafi verið að það kostaði 5 milljarða. Er ekki eðlilegt að slíkir hlutir komi þá inn á borð þingsins áður en verkefnið er sett í gang? Ég þykist vita að þegar fjármálaráðherra hefur nefnt einhverja hluti þá ætli hann sér að fylgja þeim eftir. Þarna er að mínu viti um að ræða útgjaldaauka sem þjónar ekki akkúrat þeim sem þyrftu á stuðningi að halda þennan daginn. Ég hefði gjarnan viljað sjá aðra og að mínu viti mikilvægari hluti akkúrat á þessum tímapunkti. En maður sér svona einhvern veginn að verið er að henda fram einhverjum hlutum sem geta hljómað vel (Forseti hringir.) en svo verða til einhver milljarðaútgjöld í framhaldinu.