fjáraukalög 2022.
Forseti. Þetta er alveg gríðarlega gott dæmi sem hv. þingmaður kemur með hér því að eins og lög um opinber fjármál virka núna setur ríkisstjórnin sér ákveðin markmið, setur ákveðna stefnu. Í þessu er það t.d. stefna um loftslagsmál. Í þann málaflokk eru settir ákveðið margir milljarðar til verkefna til að ná ákveðnum árangri sem er mælikvarði á. Hvaða árangri ætlum við að ná? Þar gæti ráðherra komið með breytingu á framkvæmd verkefnisins og sagt: Allt í lagi, við vorum með 10–20 verkefni þar sem við ætluðum að ná þessu markmiði, með þessum 5 milljörðum eða eitthvað því um líkt, en við nánari greiningu komumst við að því að með því að fara í niðurgreiðslu rafbíla myndum við ná betri árangri. Það væri betri nýting á opinberu fé. Í staðinn fyrir þessi 20 verkefni þá er það bara eitt verkefni. Langtímaáhrifin, skammtímaáhrifin og allt eru meiri fyrir sama fé. Þá er ekki nein aukafjárheimild. Það er fínt. Þetta má ráðherra gera, ekkert mál. En ef ráðherra ætlar að fara í aukin verkefni, taka nýja ákvörðun þá er það ekki aukamál, þá er það mál sem þarf að koma í fjármálaáætlun fyrst og síðan í fjárlög. Ferlið er einfaldlega það langt. Ef stjórnvöld ætla að skipta um stefnu og gera eitthvað nýtt þá þarf það að fara fyrir þingið, þá þarf þinglega meðferð. Við gerum þá kröfu á stjórnvöld að þau vinni það faglega að hægt sé að skipuleggja verkefnin með löngum fyrirvara. Það er nokkurn veginn kvöðin við að vera í opinberum rekstri, að gera hlutina faglega á þann hátt að leita lýðræðislegrar umræðu fyrir ákvörðunum stjórnvalda. Mjög gott dæmi.