152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:00]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil hvetja hv. fjárlaganefnd til að fara yfir nokkur fleiri atriði en nefnd eru í þessu frumvarpi þegar hún fær þetta frumvarp til meðhöndlunar. Ég get nefnt verðbólguna, sem er há. Það var kannski ekki fyrirséð í desember, þegar fjárlögin fyrir árið 2022 voru samþykkt, að hún færi svona hátt og að stríð skylli á í Evrópu var heldur ekki ljóst. Það eru þarna afleiðingar af ástandi sem var ófyrirséð sem þarf að bregðast við. Við þekkjum það vel og við vitum hvaða hópar það eru í samfélaginu sem mega ekki við neinum aukakostnaði bara til að reka heimili sitt. Þetta eru öryrkjar, þetta eru aldraðir sem þurfa að treysta eingöngu á greiðslur frá Tryggingastofnun, þetta eru einstæðir foreldrar, fólk á lágum og meðallaunum sem er skuldsett, og t.d. leigjendur. Bæði húsnæðislán og leiga hækka með sjálfvirkum hætti þegar verðbólgan fer upp. Það þarf að bregðast við þessu og ég hvet hv. þingmenn í fjárlaganefnd að skoða þetta við meðferð frumvarpsins. Við eigum góð kerfi sem er mjög auðvelt að grípa til. Við vitum hvernig þau virka. Það eina sem þarf að gera er að setja önnur viðmið inn í kerfin. Þarna er ég að tala um vaxtabótakerfið, húsnæðis- eða leigubæturnar, húsaleigubæturnar og svo barnabæturnar. Þetta eru jöfnunartæki sem eru kröftug, sem við eigum auðvitað að beita við þessar aðstæður sem nú eru uppi.

Annað sem er mjög mikilvægt að skoða betur er heilbrigðiskerfið, því að í lok febrúar voru liðin tvö ár frá upphafi faraldursins, sem hófst í febrúar árið 2020. Eins og við vitum öll þá hefur Covid-faraldurinn, heimsfaraldurinn, sannarlega haft margvísleg áhrif á samfélagið allt og heilbrigðisstofnanirnar. Dagleg Covid-19 smit fóru í tæplega 5.000 þann 25. febrúar síðastliðinn og höfðu þá aldrei verið fleiri á einum degi. Þetta gerðist á sama tíma og öllum takmörkunum var aflétt í samfélaginu. Það sem af er ári hafa stórir hópar starfsmanna verið frá vinnu vegna Covid-19, t.d. á Landspítalanum, og hefur það haft mikil áhrif á starfsemina. Manneklan á heilbrigðisstofnunum landsins vegna veikinda starfsmanna hefur verið stórt vandamál og er stórt vandamál og það bætist ofan á þann vanda sem við bjuggum við fyrir. Á Landspítalanum voru, þegar mest lét, 15% starfsmanna frá vinnu vegna Covid.

Eins og ég sagði áðan, frú forseti, þá eru fjáraukalög til að bregðast við ófyrirséðum vanda og þessi gríðarlegi fjöldi smita á skömmum tíma og áhrif þess á heilbrigðiskerfið hlýtur að teljast vera það. Þess vegna er það skylda okkar að bregðast við. Fjarvera starfsmanna vegna veikinda hefur haft gríðarleg áhrif á stofnanir. Stofnanir hafa þurft að kalla fólk inn á aukavaktir sem felur í sér mikinn kostnað. Það má ekki vera svo að heilbrigðisstofnanir þurfi að skerða þjónustu vegna þess ástands sem hefur varað núna fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Það er ljóst hvaða áhrif þetta hefur á stofnanir og það er hægt að bregðast við.

Langvarandi áhrif á heilbrigðisstarfsfólk eru farin að hafa miklar afleiðingar. Vaxandi áhyggjur eru um að kulnun í starfi vegna álags muni bætast ofan á þann mönnunarvanda sem fyrir er. Það er gert ráð fyrir því að eldra fólki hafi fjölgað um 60% árið 2040 og það er augljóst að það blasir við mannekla í heilbrigðisgeiranum og hún er auðvitað nú þegar orðin mikil. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með hvernig heilbrigðisstarfsfólk hefur náð að glíma við þessar aðstæður og það er löngu kominn tími til þess að stjórnvöld bæti starfsaðstöðu og umbuni fólki fyrir störf sín í faraldrinum.

Ríkisstjórnin samþykkti í fjárlögum á síðasta ári framlög til að koma á laggirnar farsóttardeild, sem er bara ágætt, en það þarf að gera mun meira. Það er ekki nóg að rigga upp deildum hér og þar heldur þarf að gera stórátak í að manna starfsemina. Ég hef nefnt hér Landspítalann en ég vil líka nefna Sjúkrahúsið á Akureyri þar sem þau standa frammi fyrir því að þurfa að skerða þjónustu vegna vanfjármögnunar. Ég get líka nefnt heilbrigðisstofnanir úti um landið sem búa við fjárhagsvanda ofan á mannekluna og þar er kannski skemmst að líta til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem verið hefur í umræðunni og er sannarlega fjársvelt stofnun. Þar er líka kallað eftir aukinni heilbrigðisþjónustu í kjölfar faraldursins og við því þarf að bregðast.

Það er annað sem þarf líka að gera, það er að skoða biðlistana vegna aðgerða sem frestað hefur verið út af Covid. Þar eru alls konar skurðaðgerðir sem hægt hefur verið að fresta. Þær eru kallaðar valkvæðar en eru í raun varla það. Ég held að við sem hér erum inni þekkjum fólk sem þarf að þola þjáningar vegna þess að það bíður mánuðum saman eftir liðskiptaaðgerð, svo dæmi sé tekið. Þessir biðlistar hafa lengst, aðgerðum hefur verið frestað út af Covid og það þarf að bregðast við þessu og fara í átak, gera a.m.k. áætlanir um það hvernig á að vinna niður þessa biðlista og dreifa álaginu út um þær stofnanir sem mögulega geta létt af Landspítalanum hvað þetta varðar. Þá er ég sérstaklega að horfa á Sjúkrahúsið á Akureyri og Kragasjúkrahúsin hér í kringum höfuðborgarsvæðið.

Í faraldrinum hefur það komið svo skýrt í ljós að sparnaðurinn, niðurskurður og aðhaldskröfur undanfarinna ára hafa ekki borgað sig. Staðan í heilbrigðiskerfinu var veik þegar kórónuveirufaraldurinn skall á. Hún var veik vegna þess að alltaf var verið að skera niður og draga úr þjónustu og auka álag á starfsfólk og síðan þegar heimsfaraldur skellur á er kerfið bara of veikt til að taka við álaginu. Fyrir vikið hefur þetta kostað samfélagið mikla fjármuni og skert lífsgæði hjá sjúklingum sem hafa þurft að bíða eftir aðgerðum vegna stöðunnar. Aukning á framlögum til heilbrigðismála hafa að mestu verið kjarabætur og verðbætur, en reksturinn í rauntölum núna er annars svipaður og hann var árið 2008. Þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu hefur hins vegar vaxið töluvert síðan þá. Og nú þegar óvissan er vonandi minni vegna Covid er tímabært að stjórnvöld hugsi út fyrir heimsfaraldur og neyðaraðgerðir. Það er fullt tilefni til þess að fjárlaganefnd taki til umræðu stöðuna í heilbrigðiskerfinu nú þegar þetta fjáraukalagafrumvarp er rætt. Það þarf að bregðast við og það þarf að gera stofnunum kleift að mæta þörfinni fyrir aukinni heilbrigðisþjónustu í kjölfar Covid. Kallað er eftir aukinni líkamlegri heilbrigðisþjónustu en líka þeirri andlegu. Það þarf að leggja þetta að jöfnu og bregðast við eins og mögulegt er.

Það er sem sagt mjög mikilvægt að hv. fjárlaganefnd fari vel yfir heilbrigðismálin og stöðuna og kalli eftir tölum um hvernig hlutirnir hafa breyst síðan fjárlögin fyrir árið 2022 voru samþykkt og hvernig bregðast megi við þörfinni fyrir aukna fjárveitingu á hinum ýmsu stofnunum til að gera þeim kleift að ráða við ástandið, því að núna getum við ekki kallað eftir því að stofnanirnar taki bara á sig þennan óvænta skell, þetta óvænta viðbótarálag, og dragi úr sjálfsagðri heilbrigðisþjónustu við þá sem þurfa á henni að halda.

Frú forseti. Ég vil trúa því að ríkisstjórnin vilji ekki að þeir sem eru veikastir fyrir í samfélaginu beri þungann af þeirri stöðu sem nú er uppi vegna þess að það eru afleiðingar vegna heimsfaraldurs sem eru augljósar fyrir alla sem vilja sjá og við þurfum að taka á þessu sameiginlega. Sömuleiðis, eins og ég sagði í upphafi, eigum við að bregðast við og sjá til þess að fjárhagslega veikir hópar, sem við þekkjum í samfélaginu, geti náð endum saman þegar verðbólgan fer af stað eins og hún hefur gert.

Að lokum, frú forseti, vil ég taka undir með hv. þm. Viktori Stefáni Pálssyni þegar hann ræddi hér í ræðu sinni í gær um þetta fjáraukalagafrumvarp um stöðu Garðyrkjuskólans að Reykjum. Hann fór ágætlega yfir þá stöðu og ég ætla ekki að endurtaka það nema bara það sem er svo mikilvægt að fjárlaganefndin taki upp, að þegar ákveðið var að Garðyrkjuskólinn að Reykjum færi undir Fjölbrautaskóla Suðurlands — og það kostar u.þ.b. 350 milljónir að reka Garðyrkjuskólann með öllum þeim eignum og græjum sem til þarf á ári — fékk Fjölbrautaskóli Suðurlands á fjárlögum fyrir árið 2022 11 milljónir til að taka við þessu námi og rekstrinum á staðnum. Það eru augljóslega allt of fáar milljónir þannig að ég treysti því að hv. þingmenn sem sitja í fjárlaganefnd rýni þessa stöðu. Það má líka vera að núna þegar svona mikil breyting varð á verkaskiptingu á milli ráðuneyta hafi eitthvað orðið út undan. Þetta þarf nefndin líka að rýna og koma með upplýsingar fyrir okkur hér í 2. umr.