152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:12]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Af því að ég þekki þingmanninn ágætlega og veit að hún hefur bæði verið ráðherra og setið í fjárlaganefndinni, fengist við fjárlög frá ýmsum hliðum, þá langar mig aðeins til að fá að ræða við hana um forsendur fjárlaga sem þetta byggir og hvílir í raun og veru allt saman á. Hv. þingmaður nefndi að verðbólgan æddi hér áfram. Við erum komin með verðbólgu sem nálgast 7%. Við vitum að það að verðbólgan er að aukast hefur ekki bara áhrif á fólkið sem fyrir henni verður heldur líka á ríkissjóð. Allt verður dýrara, öll innkaup verða dýrari og vaxtagreiðslur hækka. Það er eitt og annað sem hvílir á verðbólgu. Það eru líka fleiri forsendur sem voru gefnar fyrir þessum fjárlögum, m.a. að við værum að veiða loðnu sem samkvæmt nýjustu fréttum er ekki að veiðast eins og ráð var fyrir gert. Það eru einhver 100–200 þús. tonn sem nást ekki. Þarna erum við að tala um einhverja milljarða. Það var líka verið að horfa til fjölda ferðamanna sem gætu verið að koma hingað í stríðum straumum og það að atvinnuleysi væri að minnka vegna þess að hér væri ferðaþjónustan að fara í gang aftur. Allt er þetta grundvöllur fyrir þessum fjárlögum sem við erum að tala um. En sér þingmaður einhverjar breytingar þarna sem þyrfti að endurskoða sem gera það að verkum að kannski þurfi að veifa einhverjum flöggum núna?