152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:14]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er möguleiki á því í þingsköpum að koma með fjáraukalög til að bregðast við því sem er óvænt og ófyrirséð, bæði á gjalda- og tekjuhliðinni. Ég held að það hafi ekki verið ófyrirséð að tekjurnar myndu ekki duga fyrir nauðsynlegri velferðarþjónustu og heilbrigðisþjónustu svo dæmi sé tekið. Það var okkur ljóst í desember þegar við samþykktum fjárlög fyrir árið 2022. Þá áttum við auðvitað að setja auðlindagjöldin á stórútgerðirnar sem mala gull. Það sem við fáum í kassann inn í ríkissjóð fyrir þessa auðlind þjóðarinnar nægir ekki einu sinni fyrir þjónustu við greinina sjálfa. Það er auðvitað hneyksli og það er eitthvað sem verður að laga. Auðvitað eigum við að taka auknar tekjur þar inn og síðan eigum við að horfa á hátekjuskatt á ofurlaun og reyna að jafna leikinn, taka inn tekjur og jafna leikinn með fleiri þrepum í tekjuskattskerfinu okkar. En auðlindagjöldin er eitthvað sem er alveg augljóst að við þurfum að taka umræðu um og ákveða sem fyrst hvernig við ætlum að hækka. Ég segi bara aftur: Það er hneyksli og til skammar fyrir okkur sem þjóð að við skulum vera með almannatryggingakerfið eins og það er þar sem fólk býr í fátæktargildru en gefa auðmönnum sem reka stórútgerðir afslátt af auðlindagjöldum. Það er auðvitað til skammar og við þurfum að taka á því.