fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu það sem upp á vantaði, m.a. vanáætlun í heilbrigðisútgjöld eða ekki vilja til að sinna þeim málum eins og mörg okkar teljum að þyrfti að gera. Það er ekki verið að áætla nægilega mikla fjármuni í að styðja við grunnþjónustuna sem þarf svo sannarlega að vera til staðar, ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu heldur úti um allt land. Við vitum auðvitað að þetta kostar fjármuni.
Ég hlustaði á og tók þátt í umræðunni um heilbrigðismál eldri borgara og þar segir hæstv. heilbrigðisráðherra: Við getum ekki bara verið að byggja hjúkrunarheimili, við getum ekki bara verið að byggja hjúkrunarrými því að það er svo dýrt, það er dýrasta úrræðið. Jú, fyrir þennan hóp sjúklinga en getur ekki hv. þingmaður séð sparnað í að byggja einmitt hjúkrunarheimili til að flytja þá sem eru inni á spítölunum yfir í hjúkrunarheimili til að losa um úrræði þar, sem sannarlega er nauðsyn á að gera, þannig að við séum ekki alltaf að tala um að þetta sé svo dýrt heldur getum við bara séð sparnað í því að halda áfram í uppbyggingu á þessum sviðum sem og á öðrum sviðum, eins og bara t.d. í grunnþjónustunni, í heilsugæslunum sem hv. þingmaður nefndi hér? Hún talaði sérstaklega um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hefur verið svelt svo árum skiptir. Sjáum við ekki bara tækifæri í sparnaði þarna með því að sinna þessum málaflokkum betur?