fjáraukalög 2022.
Forseti. Hv. þingmaður talaði um ráðstafanir varðandi húsnæðismál, að koma inn með fjárauka eða eitthvað því um líkt til að redda hlutum, og ég skil það alveg mjög vel miðað við vandann. En vandinn sem við horfumst í augu við varðandi lög um opinber fjármál er það hvernig stjórnvöld haga þessu fjárlagaferli og ég var að reyna að lýsa því í ræðu minni áðan. Stjórnvöld mega einfaldlega ekki, nema eitthvað óvænt gerist, eitthvað ófyrirsjáanlegt, koma með svona og skutla inn: Heyrðu, við ætlum að fá 10 milljarða í eitthvert nýtt verkefni. Það er ekki rétt ferli um notkun fjárheimilda af því að stefna stjórnvalda og hugmyndir um ný verkefni eiga að fara þessa löngu leið; fjármálaáætlun og fjárlög. Það er ákveðinn hvati fyrir stjórnvöld eða kannski kvöð á stjórnvöld að hugsa betur fram í tímann, t.d. varðandi húsnæðisáætlanir, til þess að það komi ekki upp krísa allt í einu. Það á ekki að geta gerst. Mig langar að spyrja hv. þingmann um þetta. Þessi fjárauki er eins og fjárlög voru gerð en eru ekki gerð lengur samkvæmt lögum um opinber fjármál sem á að vera með stefnumótunarferli stjórnvalda að leiðarljósi og höfuðforsenda þess um hvernig við fjöllum um fjárheimildir fyrir stjórnvöld er að þau komi einmitt ekki með eitthvað svona einn, tveir og þrír. Ef það er Covid eða eitthvað því um líkt sem skellur á og veldur álagi einhvers staðar þá er kannski rétt og hægt að koma með slíkar tillögur en ekki bara upp úr þurru.