152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:31]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel að frumvarp til fjáraukalaga eigi að leggja fram í ákveðnum aðstæðum, þegar verið er að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins. Þetta er yfirleitt gert í lok fjárlagaársins en það eru engin skilyrði fyrir því núna að gera þetta í formi frumvarps til fjáraukalaga. Ég tel að stjórnvöld eða ríkisstjórnin eða fjármálaráðherra hafi bara ákveðið að skutla þessu máli inn í formi fjáraukalaga en þetta sé raunverulega breyting á fjárlögum. Það er verið að breyta fjárlögum og þá á að koma með frumvarp til breytinga á fjárlögum. Það er það sem á að gera. Ég greiddi ekki atkvæði með núgildandi fjárlögum, studdi þau ekki, og ég ætla ekki að svekkja mig meira á því, en hv. þingmaður nefndi húsnæðisverðið og ef verðbólga og húsnæðisverð er að fara úr böndunum innan fjárlagaársins þá eru að sjálfsögðu heimildir til þess og sjálfsagt að bregðast við því og gera það á grundvelli fjáraukalaga. Það er allt í lagi að gera það núna á vormánuðum, sérstaklega þegar aðstæður eru breyttar og ég tala nú ekki um þegar matvælaverð er líklega að fara upp úr öllu valdi bæði í heiminum og hér á Íslandi. Þá er sjálfsagt að gera það á grundvelli fjáraukalaga. En ég tel að formið á þessu frumvarpi sé ekki rétt. Þarna er verið að færa á milli liða, milli málefnasviða, fjárheimildir vegna breytingar á forsetaúrskurði. Og þá á bara að gera breytingar á fjárlögunum, ekki að koma með fjáraukalagafrumvarp. Það passar einfaldlega ekki. Ég tel að þetta sé ekki nægilega rökstutt í greinargerðinni, af hverju það eru fjáraukalög þarna undir. Það hefði þurft að gera það sérstaklega, segja að skilyrðin séu fyrir hendi fyrir frumvarpi til fjáraukalaga, en það má ekki lesa það út úr greinargerðinni. Ég hef ekki heyrt nein rök fyrir því að þetta eigi að fara í gegnum fjáraukalög. Varðandi aðra þætti þá þarf bara að koma með frumvarp um það. Ég hefði hvatt til þess eindregið núna að koma með fjáraukalagafrumvarp til þess að taka á vandanum á húsnæðismarkaðnum og aukinni verðbólgu.