fjáraukalög 2022.
Forseti. Varðandi forsetaúrskurðinn og fjáraukalögin þá er þetta kannski óhjákvæmileg afleiðing þess hvenær var kosið og hvenær þing kom saman og afgreiddi fjárlög og síðan var gefinn út nýr forsetaúrskurður og það urðu alls konar flækjur. Við áttum þá umræðu hér í þingsal um hvers konar klúður það var frá A til Ö og kannski þann óhjákvæmileika að það var bara gert eftir að búið var að samþykkja fjárlög þegar allt kom til alls. Það er alveg eðlilegt að koma með breytingar á fjárlögum og það er gert með frumvarpi til fjáraukalaga sem endar í núlli. Það er engar auknar fjárheimildir hérna, dálítið skrýtið. Sem sagt, þetta er bara áframhald á því klúðri, við getum orðað það þannig. Alla jafna værum við að kjósa að vori og þá væri búið að afgreiða þetta með forsetaúrskurði áður en frumvarp til fjárlaga er lagt fram og væri þá með öllum þeim millifærslum sem það felur í sér. En það er nauðsynlegt að minnast á það að í 41. gr. stjórnarskrárinnar stendur að ekkert gjald megi greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum og það hefur óhjákvæmilega þær afleiðingar að ef ríkisstjórnin ætlar að bregðast við einhverjum óvæntum útgjöldum eða óvæntum tilvikum þá á að leita eftir heimild til þess með fjárauka áður en kemur til þess að nota fjárheimildirnar. Ef verðbólgan fer á flug þá væri mögulegt að koma með fjárauka út af því (Forseti hringir.) en það ætti í rauninni ekki endilega að þurfa því að lög um opinber fjármál gera líka ráð fyrir ákveðnum sveiflum, að ríkissjóður geti farið í mínus. (Forseti hringir.) Þá myndu stjórnvöld fara í auknar fjárheimildir til þess að ná markmiðunum, því að það eru markmiðin sem skipta máli þegar allt kemur til alls.
(Forseti (DME): Forseti minnir á ræðutímann sem er tvær mínútur í andsvörum.)