fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Það er alveg rétt að Alþingi fer með fjárveitingavaldið og þá má ekki greiða neina peninga úr ríkissjóði nema með heimild Alþingis. Ég sé þetta mál ekki þannig. Ég sé þetta mál þannig að það tengist forsetaúrskurði, eins og segir í greinargerð, með leyfi forseta:
„Í samræmi við þann forsetaúrskurð samþykkti Alþingi færslu fjárheimilda milli málefnasviða og málaflokka í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2022, við 3. umræðu þess.“
Svo er núna, við flutning stjórnarmálefna milli ráðuneyta, verið að flytja þessar fjárheimildir milli ráðuneyta að því marki sem eðlilegt er talið, að teknu tilliti til verkefna og aðstæðna. Þetta er raunverulega tæknileg breyting hérna þar sem verið er að laga framsetningu fjárheimilda að breyttri skipan ráðuneyta. Það er verið að flytja til á milli málefnasviða, færa á réttu bókhaldslyklana og rétt málefnasvið af því að það eru komin ný ráðuneyti. Ég tel allt í lagi að kjósa að hausti. Þessi afgreiðsla á fjárlögum var reyndar svolítið í skemmri kantinum en það breytir því ekki að fjármálaráðuneytinu ber skylda til að hafa tilbúið frumvarp til fjárlaga á réttum tíma og svo þegar kemur nýr þingmeirihluti setur hann sína pólitík inn í fjárlögin. Ég gat hins vegar ekki lesið það núna í frumvarpi til fjárlaga að það væri komin einhver sérstök stefna ríkisstjórnarinnar inn í þau fjárlög. Þetta var svona embættismannafrumvarp til fjárlaga. En það á ekki að taka neinn tíma ef menn hafa skýra sýn og vita hvað þeir vilja gera. Það kallar kannski á breytingu á lögum um opinber fjármál, að það sé skýr heimild til breytinga á fjárlögum þegar forsetaúrskurði er breytt en lög um Stjórnarráð Íslands gera ráð fyrir samkomulagi milli ráðuneytanna til að flytja fjárheimildir á milli. Það eru þau lög sem við erum að skoða af því að þetta er breyting á Stjórnarráði Íslands. (Forseti hringir.) Það hvernig sú breyting kemur síðan inn í fjárheimildirnar tel ég ekki endilega að þurfi að koma hingað.