fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Eins og ég hef nú sagt áður þá er ég nýr þingmaður og sit í fjárlaganefnd, reyndar ekki sem fullgildur nefndarmaður heldur sem áheyrnarfulltrúi, og er að reyna að ná utan um vinnubrögðin sem viðhöfð eru við fjárlagagerð af því að grunnurinn að þessu öllu saman er auðvitað að við höldum rétt á þeirri vinnu sem þar á sér stað þannig að þær áætlanir sem við verðum að leggja fram standist. Hér hefur verið nefnt og hv. þingmaður nefndi það í sinni ræðu að hann saknaði þess að ekki væri verið að bregðast við þeirri stöðu sem upp væri komin, m.a. með hækkandi húsnæðisverði, aukinni verðbólgu. Þetta væru liðir sem væru farnir að hafa áhrif á heimilin í landinu og væntanlega líka ríkissjóð. Síðan er verið að vitna í þennan lagagrundvöll sem við erum að vinna á, lög um opinber fjármál og 26. gr. laganna um hvað er heimilt í fjárauka. Þar stendur:
„Ráðherra er heimilt, ef þess gerist þörf, að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins …“
Þá spyr maður: Hversu mikla heimild hefur ráðherra og þing til að, segjum bara að auka húsnæðisstuðning eða gera hvað eina sem getur haft áhrif á afkomu ríkissjóðs? Mér finnst eins og þessi 26. gr. sníði stakkinn ansi þröngan þannig að ég veit ekki hverjar valdheimildirnar eru. (Forseti hringir.) Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því?