fjáraukalög 2022.
Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við afgreiðslu síðasta fjárlagafrumvarps, sem eru núgildandi fjárlög, kom stjórnarandstaðan með tillögu um aukin framlög ríkissjóðs til uppbyggingar almennra íbúða upp á 3,5 milljarða kr. Það var ekki samþykkt, það náði ekki fram að ganga. En ég tel að það sé fullkomin heimild til þess hjá þinginu, ef ástandið versnar og núna er fyrirsjáanlegt að verðbólga mun aukast og hagur heimilanna mun enn þá versna, að bregðast við því og það er hægt að gera það með fjáraukalögum. Það er ekki gert. Ég held hins vegar, og það sýnir svolítið stefnuleysi núverandi þingmeirihluta eða ríkisstjórnarinnar, að þau ætli sér ekkert að gera. Af hverju er það? Jú, þau ætla að bíða eftir kjarasamningsviðræðum. Þau fara sennilega í aðgerðir til að bregðast við verðbólgunni og hækkandi húsnæðisverði í samningaviðræðum, þríhliða samningaviðræðum við aðila vinnumarkaðarins. Þá ætla þau að gera þetta. Það sýnir svolítið stefnuleysi ríkisstjórnarinnar. Þau hafa ekki frumkvæði, þau hafa ekki stefnuna en þetta mun líklega koma, það verður farið í aðgerðir þegar verður samið við aðila vinnumarkaðarins og þá verður að kröfu launþegahreyfingarinnar að bregðast við ástandinu á húsnæðismarkaðnum. Þá mun verða gert eitthvað. Þá gætum við kannski, í framhaldi af því, séð fjáraukalög.