fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af því ef raunin verður sú sem hv. þingmaður er að nefna hér, að það verði ekki brugðist við fyrr en kannski í október, nóvember eða desember. Ég þekki nú kjarasamningsgerð á eigin skinni í gegnum tíðina og ég hef aldrei upplifað það að við værum að gera kjarasamning um leið og hinn var að renna út þannig að ég óttast að það taki tíma að gera þá kjarasamninga sem fram undan er að gera. En ég held að þörfin til breytinga sé til staðar núna og það þurfi með einhverjum hætti að horfa til þessarar stöðu sem hv. þingmaður nefnir, aukinnar verðbólgu, hækkandi húsnæðisverðs, matarverð að hækka, eldsneytisverð að hækka. Við í stjórnarandstöðunni höfum jú lagt fram þingsályktunartillögu sem ég veit ekki hvar er, einhvers staðar í skúffu í einhverjum skjalaskáp, en þar voru tillögur til þess að hjálpa til og innan ekki margra daga fáum við líka fjármálaáætlun til næstu ára. Við þurfum að koma inn í þá áætlun þeirri stefnu sem við viljum standa fyrir. Að minni hyggju tel ég nauðsynlegt að bregðast við með einhverjum aðgerðum núna og mig langar að biðja þingmanninn að nefna þær aðgerðir sem hann telur rétt að grípa til akkúrat núna.