152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:44]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tel að sú aðgerð sem ætti að fara í núna sé að auka framboð á húsnæði til að lækka húsnæðisverð. Húsnæðisverð er allt of hátt. Það er það fyrsta. Þar getur ríkisstjórnin og stjórnvöld gripið inn í með mjög afgerandi hætti. Ég tel líka að við þurfum að fara að huga að verðbólgunni og þá má t.d. byrja á því að taka húsnæðisliðinn út úr verðbólguútreikningum. Það er algjört grundvallaratriði. Bara það myndi strax skipta mjög miklu máli. Flest húsnæðislán á Íslandi eru verðtryggð þannig að þetta myndi hafa afgerandi þýðingu fyrir skuldsetningu heimilanna. Ég myndi byrja á því, algerlega. Svo þarf að fara í þá aðgerð líka að auka velferðarþjónustu til að minnka höggið af aukinni verðbólgu.

Varðandi það sem ég sagði upphaflega í ræðu minni þá tel ég að það sé atriði sem við getum tekið upp í fjárlaganefnd þegar þetta frumvarp kemur til umræðu þar og þar getum við rætt kannski nauðsynlegar breytingar á lögum um opinber fjármál og hvort þetta mál sé á réttu formi eða ekki.