152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég hef hlýtt á umræður í þessu máli. Ég er sammála þeim áhyggjuröddum og þeim sjónarmiðum sem heyrst hafa um aðstæður í efnahagsmálum núna í aðdraganda kjarasamninga og sakna þess, eins og aðrar stjórnarþingmenn, að ríkisstjórnin sýni aðeins á spilin um það hvernig eigi að bregðast við stöðugt þyngri aðstæðum almennings í landinu hvað efnahagsmálin varðar. Auðvitað er það sérstakt í því samhengi sem við lifum núna, þegar við sjáum hvað er að gerast með vexti, hvað er að gerast með verðbólgu og að róðurinn er að þyngjast, að ríkisstjórnin sé á sama tíma að leggja fram frumvarp um 2 milljarða, eiginlega bara í útgjöld fyrir sig sjálfa, 2 milljarða kr. útgjöld vegna þess að það voru stofnuð ný ráðuneyti og ráðuneytum var fjölgað. Ég held að það hljóti að skipta máli við hvaða aðstæður menn fara fram með þessum hætti þó að það sé auðvitað aldrei til fyrirmyndar að fara út í það að hækka útgjöld ríkisins um heila 2 milljarða á næstu fjórum árum án þess að það hafi verið nokkur einasta sýnileg þörf á því. Raunar var það þannig að manni virðist að þegar ákveðið var að fjölga ráðherrum og stofna ný ráðuneyti hafi ekki legið fyrir nein kostnaðargreining. Mér er minnisstætt að hæstv. fjármálaráðherra svaraði því þannig þegar hann var spurður að því hér í þingsal, að mig minnir af þingmanni Miðflokksins, hver kostnaðurinn við þessar breytingar yrði, með leyfi forseta:

„Ég treysti mér ekki til að setja tölu á bak við það en það er ljóst að með því að stofna nýtt ráðuneyti, fleiri en eitt, þá mun verða kostnaður og hann getur hlaupið á hundruðum milljóna …“

Það var rétt hjá honum. Kostnaðurinn hleypur á hundruðum milljóna — á ári. Yfir kjörtímabilið var þetta, eins og ég var búin að nefna, 2 milljarðar kr. Ég vil nefna þetta í því samhengi að hér heyrum við gjarnan þingmenn Sjálfstæðisflokksins tala um það að sýna ábyrgð í ríkisrekstri og þeir eru gjarnan að punda á sveitarfélögin fyrir að halda ekki nógu fast á veskinu samhliða því sem þeir hafa þá fært sveitarfélögunum einhver verkefni án þess að fjármunirnir fylgi. Standa svo hér á þingi og tala um að menn séu ekki ábyrgir í fjármálum en aldrei heyrist orð t.d. um þetta, þar sem menn gátu leyft sér að fara fram með þessum hætti bara til að fjölga ráðherrastólunum. Það verður að segjast eins og er að það er holur hljómur í því þegar menn tala þannig þegar staðan er eins og hún er, líkt og hefur komið fram í ágætum umræðum um vexti, um verðbólgu og hvert umhverfið er núna þegar við erum að horfa fram á kjarasamningsgerð. Staðan við afgreiðslu fjárlaga var líka sú að það var gert ráð fyrir því að ríkissjóður yrði rekinn með tæplega 170 milljarða kr. halla. Það blasir því auðvitað við að það eru krefjandi tímar fram undan fyrir ríkið og fyrir almenning í landinu. Ég nefni aftur kjarasamningagerð í skugga þessara aðstæðna, verðbólgu og vaxtahækkana.

Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra í gær um það sem hann hefur talað um alveg sérstaklega núna, að það þurfi að vanda sig í opinberri fjármálagerð og áætlanagerð til næstu ára. Hann hefur talað um það að launakostnaður hafi í fyrra hækkað um 7,5% en kemst engu að síður sjálfur að þeirri niðurstöðu hvað sig varðar og sína stjórn og hvernig hann fer með fjármál að það væri skynsamlegt að fjölga ráðuneytum og auka þannig hraustlega við launakostnað í Stjórnarráðinu en biðla svo kannski bara til annarra um að vanda sig. Eins og ég segi virðist ákvörðun formanna ríkisstjórnarflokkanna um að fjölga ráðuneytum hafa verið tekin án þess að fyrir lægi greining á kostnaði, sem er yfirleitt grundvallarpunktur þegar menn fara með fjármuni, sér í lagi fjármuni annarra og hvað þá þegar við erum að tala um svona upphæðir, og án þess að það lægi fyrir einhver greining á þörfinni.

Síðan var það þannig að hv. þm. Helga Vala Helgadóttir lagði fram fyrirspurn um það hver kostnaðurinn yrði og einhverra hluta vegna varð tímalínan sú að svörum um raunverulegan kostnað við þetta mál var dreift til þingmanna einhverjum klukkustundum eftir að við vorum hér að ræða þessi mál.

Ég hef líka nefnt í þessum sal að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er með þessari breytingu orðin sú fjölmennasta sem hefur völd í meira en áratug. Þeir eru orðnir jafn margir ráðherrarnir og þeir urðu flestir í Íslandssögunni sem var á árunum 1999–2010. Ráðherrunum var fækkað í átta árið 2012 með sameiningu ráðuneyta. Ég fór aðeins að skoða það og við munum það kannski flest sem erum í þessum sal hvers vegna farið var í þær aðgerðir á sínum tíma. Þar réð kostnaður vissulega miklu en ekki síður sú ástæða að einn af lærdómum hrunsins var sá að ráðuneytin höfðu verið of veik til að standa undir mikilvægum hlutverkum sínum og verkefnum. Þetta kemur skýrt og skilmerkilega fram í skýrslu starfshóps um viðbrögð stjórnsýslunnar við rannsóknarskýrslu Alþingis. Þessi starfshópur rýndi sem sagt sérstaklega þá punkta sem höfðu með stjórnsýsluna og innviði hins opinbera að gera, þ.e. hvaða þættir það voru í stjórnsýslunni sem hefði mátt bæta í samhengi við það hvernig fór á sínum tíma. Meginniðurstöðurnar voru þær að þessi faglegi grunnur stjórnsýslunnar væri veikur, ekki bara vegna ómarkvissra pólitískra inngripa í störf, eins og það er orðað, heldur ekki síður vegna þess að einingarnar voru of smáar. Þannig að niðurstaðan, fagleg rýni fyrir réttum áratug, var sú að stærri ráðuneyti væru undirstaða þess að styrkja faglegan grunn stjórnsýslunnar, að það væri í þágu stjórnsýslunnar og þá um leið almennings í landinu að styrkja stjórnsýsluna með því að fækka ráðuneytum, sameina þau og styrkja þau þannig í krafti stærðar. Og eins og ég segi, rúmum áratug seinna velur ríkisstjórnin sér það, og mér finnst þessi punktur ekki hafa fengið nægilega athygli, að fara gegn þessum lærdómi hrunsins með því að fjölga ráðuneytum. Ég held að við höfum öll fundið fyrir því í þessum sal að kosningar fóru fram í lok septembermánaðar. Við tóku átta vikna stjórnarmyndunarviðræður. Ríkisstjórnin fór af stað í byrjun desembermánaðar. Nýtt Stjórnarráð tók til starfa 1. febrúar. Þið getið ímyndað ykkur tafirnar í stjórnsýslunni sem þessu brölti fylgir, þessu dýra brölti sem farið var af stað með án þess að fyrir lægi greining á þörf.

Ég vil fá að halda því til haga að vitaskuld eru þarna inn á milli einhverjar fínar breytingar og það er einlæg ósk mín að þær verði okkur öllum til góða. En ég vil fá að halda því til haga núna og beina því til hæstv. fjármálaráðherra, þó að hann sé ekki í salnum en það er önnur saga, að það sé umhugsunarvert að ráðherra fjármála hafi blessað þessi vinnubrögð í þeim aðstæðum sem við erum. Aftur og aftur er það því miður þannig af hálfu þeirrar ríkisstjórnar sem talar mikið um efnahagslegan stöðugleika, sem er í reynd ekki svo mikill, talar mikið um ábyrgan ríkisrekstur, að þá er ansi oft unnið eftir annarri hugmyndafræði. Það sjáum við ágætlega á þeirri staðreynd ríkissjóðurinn var orðinn ósjálfbær fyrir efnahagshremmingar heimsfaraldurs. Þegar allar aðstæður voru í lagi var fjármálastjórn ríkisstjórnarinnar með þeim hætti að ríkissjóður var ósjálfbær, þegar engar sérstakar aðstæður voru uppi sem kölluðu á það. Niðurstaðan er auðvitað sú að það hefur ekki með neitt annað að gera en stjórn fjármálanna. Í því ljósi vil ég fá að halda því til haga einu sinni sem oftar að mér finnst þessi gjörningur upp á 2 milljarða kr. óábyrgur af hálfu ríkisstjórnarinnar.