152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[14:56]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu með því að endurtaka margt af því góða sem fram hefur komið í henni, eins og t.d. hjá hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur sem ræddi hér á undan mér um þá óábyrgu meðferð opinbers fjár að splæsa 2 milljörðum í einhverja umturnun á Stjórnarráðinu án þess að það hafi einu sinni legið fyrir einhver greining á þörfinni eða greining á því hverju ætti að ná fram með þessum breytingum. Eina greiningin sem lá fyrir voru niðurstöður kosninga sem kölluðu á einn stól í viðbót undir fleiri ráðherra til að hægt væri að jafna út valdahlutföll í ríkisstjórninni.

Ég ætla ekki heldur að fara mikið út í þá sálma sem margir ræðumenn hafa gert hér í þessari umræðu, og þá langar mig sérstaklega að nefna hv. þm. Oddnýju Harðardóttur, sem fór dálítið vel yfir það í sinni ræðu hvað væri margt sem væri gott að sjá í svona frumvarpi en er ekki til staðar; öll óútskýrðu útgjöldin sem við gætum verið að taka á í þessum fjáraukalögum. Við getum bara byrjað á að tala um t.d. þessa óvæntu móttöku hundraða flóttafólks frá Úkraínustríðinu eða að við þurfum þá að fjármagna á móti móttökukerfi fyrir annað fólk á flótta til þess að ekki sé hægt að etja þeim tveim hópum gegn hvor öðrum heldur getum við tekið sómasamlega á móti öllum. Um það er ekki stafkrókur í þessum fjáraukalögum, enda er þetta frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2022 með undirtitli, sem er dálítið óvenjulegt fyrir fjáraukalög. Hér stendur á forsíðunni „um breytingar á fjárheimildum sem leiða af breyttri skipan Stjórnarráðsins í samræmi við forsetaúrskurð“. Þetta er alveg rosalega skrýtin týpa af fjáraukalögum vegna þess að í lögum um opinber fjármál stendur að heimilt sé að leita aukinna fjárheimilda í fjáraukalagafrumvarpi til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim með úrræðum sem tilgreind eru í lögum.

Við sjáum náttúrlega að uppstokkun Stjórnarráðsins lá fyrir strax og ríkisstjórnin var stofnuð. Það er það sem var aðalinntak samningaviðræðna milli stjórnarflokkanna frá kosningum fyrir hálfu ári þangað til þau tóku við völdum í byrjun desember. Í framhaldinu voru síðan samþykkt fjárlög fyrir þetta fjárlagaár en, eins og hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fór yfir, vegna þess að ekki var unnin nauðsynleg greiningarvinna var ekki hægt að útfæra fjárlög tímanlega með sómasamlegum hætti til að ná utan um þessa villtustu drauma stjórnarflokkanna um fjölgun ráðherrastóla.

Það er ekkert ófyrirséð við þetta. Það eina er að þau höfðu ekki tíma til að útfæra þetta. Þá hefði sumt fólk kannski, eins og gerðist t.d. í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, sagt: Gott og vel. Hér ætlum við að breyta Stjórnarráðinu, gerum það bara í einhverjum ákveðnum skrefum, segjum hvernig við ætlum að gera það en hróflum ekki við neinu núna vegna þess að við höfum ekki tíma til að græja það. En nei, í staðinn er starfsfólk ráðuneytanna búið að upplifa það að hafa verið í nokkrar vikur í kringum áramót í óvissu um hlutskipti sitt í þessum hrókeringum. Við erum núna í marsmánuði loksins komin með útfærslu á því hvernig á að færa fjárheimildir á milli ráðuneyta, sem þýðir að það var ekki fyrr en þetta frumvarp leit dagsins ljós sem það lá fyrir hvaða verkefni fluttust á milli ráðuneyta vegna þess að tölurnar á þessum blöðum eru verkefni ráðuneytanna, þær eru þjónusta við almenning í landinu. Verkefnin voru bara í lausu lofti frá myndun stjórnarinnar og til dagsins í dag, mörg þeirra.

Mig langar aðeins að benda á, sem mér finnst svo skemmtilegt varðandi uppsetninguna á þessu frumvarpi — hér er í 2. gr. gerð grein fyrir fjárheimildum ríkissjóðs og hvernig þær breytast í þessu frumvarpi. Það er svolítið skemmtilegt, hérna neðst er lína þar sem stendur „samtals“ en það eru engar tölur þar sem neitt er talið saman en „samtalsið“ er nefnilega 0 vegna þess að þetta frumvarp sýnir bara tilfærslur, það er engin breyting, það eru engar úrbætur, það er ekkert efnislegt að breytast. Þess vegna, og það er nú það sem ég kvaddi mér hljóðs til að ræða, er dálítið áhugavert að skoða mat á áhrifum í því frumvarpi sem við erum að fara að ræða næst, frumvarpi hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra um tímabundna fjölgun starfslauna og styrkja samkvæmt lögum um listamannalaun, vegna þess að þar stendur að gert sé ráð fyrir að veita 100 milljónir tímabundið á árinu 2022 í launasjóð listamanna á málefnasviði 18 og gert sé ráð fyrir þessum fjárhagsáhrifum á útgjaldaramma málaflokks 18.30 í fjáraukalögum 2022, sem er einmitt frumvarpið sem við ræðum hér í dag. Það er ekki gert ráð fyrir þessum pening þar, bara sorrí. Hérna skoðaði ég einmitt töfluna sem er í viðauka. Það var ekki hún sem ég skoðaði fyrst. Skoðum kafla 18.3 þar sem málaflokkur 18.30 er undir. 18.3, menningarsjóðir, þar er lagt til að fjárheimild málaflokksins verði lækkuð um 63,8 millj. kr., annars vegar með því að þar eru millifærslur af málaflokknum til annarra málaflokka. Síðan er ýmislegt hreyft til, það er fært úr gamla mennta- og menningarmálaráðuneytinu yfir í tvö eða þrjú ráðuneyti þannig að heildarniðurstaðan er 0 fyrir utan þessar 63,8 milljónir sem færast burt á önnur málefnasvið.

Ég nefni þetta hérna bara í þeirri von að einhverjir fulltrúar í hv. fjárlaganefnd sperri eyrun og fylgi þessu eftir í nefndinni vegna þess að það kemur mér verulega á óvart að tvö frumvörp séu lögð fram af ráðherrum í sömu ríkisstjórn þar sem annað frumvarpið vísar í hitt og segir: Já, þarna er gert ráð fyrir 100 milljónum, 100 millj. kr. sem við ætlum að láta listamenn hafa, en svo tala þessi frumvörp ekki saman. Annað birtist 1. mars og hitt 12. mars og það er eins og þau séu samin hvort á sínu árinu. En vitandi hvernig fjárlaganefnd virkar þá veit ég að þar er öflugt fólk sem mun taka þetta í fangið og leysa það, vona ég, því að ekki viljum við gera hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra afturreka með sitt góða mál sem við ræðum hér á eftir.