listamannalaun.
Virðulegi forseti. „Loksins, loksins,“ ritaði Kristján Albertsson rithöfundur þegar bókin Vefarinn mikli frá Kasmír eftir Halldór Kiljan Laxness var gefin út. Mér líður svolítið þannig í dag að það sé loksins, loksins þegar ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009, sem fela í sér tímabundna fjölgun starfslauna til handa sviðslistafólki og tónlistarflytjendum. Frumvarpið er liður í viðspyrnuaðgerðum ríkisstjórnarinnar til styrktar menningargeiranum vegna neikvæðra áhrifa kórónuveirufaraldursins á atvinnutækifæri listamanna.
Virðulegi forseti. Það var árið 1891 sem Alþingi veitti fyrstu skáldalaunin með sérstökum lögum og lagði þannig grunninn að reglulegum styrkveitingum úr ríkissjóði til listamanna. Fyrstu viðtakendur skáldalauna íslenska ríkisins voru þau Matthías Jochumsson og Torfhildur Hólm. Alþingi hafði á árinu 1874 fengið fjárveitingavald fyrir landið og því liðu ekki mörg ár frá því að slíkar styrkveitingar voru ríkinu fyrst mögulegar og þar til þær hófust en svipaðar styrkveitingar höfðu einnig hafist í Finnlandi og Noregi eftir að þau lönd höfðu öðlast pólitískt sjálfstæði á fyrri hluta 19. aldar. Þetta minnir mann nú bara á hvað það er mikilvægt að hafa pólitískt sjálfstæði. Fræðimenn hafa talið að úthlutun styrkja til listamanna hafi tengst viðleitni til að skapa Íslandi sess meðal annarra siðmenntaðra þjóða. Það gæti þannig státað af sínu sjálfstæða listalífi enda stór þáttur í sjálfstæðisbaráttu og sjálfstæðisvitund þjóðarinnar.
Frá árinu 1891 hefur því fé verið veitt á fjárlögum til að styrkja listalíf í landinu en framkvæmdin á þeim langa tíma hefur hins vegar verið með misjöfnum hætti. Lengi framan af var um ólögfest ferli að ræða sem gerðar voru margvíslegar athugasemdir við og mörg frumvörp lögð fram af þingmönnum sem ætlað var að skapa fastari ramma í kringum úthlutanir listamannalauna. Lög um listamannalaun voru fyrst sett árið 1967 á grunni framkvæmdar frá árinu 1946 sem hélst í raun að miklu leyti óbreytt til ársins 1991 þegar lög nr. 35/1991, um listamannalaun, tóku gildi. Með gildandi lögum frá 2009 voru síðan gerðar enn nokkrar breytingar á kerfinu þar sem listasjóður var m.a. lagður niður og stofnaður launasjóður sviðslistafólks og tónlistarflytjenda sem eru einmitt þeir sjóðir sem lagt er til með frumvarpi því sem ég mæli hér fyrir að fái tímabundið aukið fjárframlag.
Virðulegi forseti. Þegar við ræðum um listamannalaun er mikilvægt að við séum meðvituð um langa og merka sögu þeirra, hvernig sú saga hófst og upp úr hvaða aðstæðum hún sprettur. Listalíf er hverri þjóð gríðarlega mikilvægt og styrkir til listamanna eru í mörgum tilvikum alger forsenda þess að gróskumikið listalíf geti þrifist og dafnað. Jafnvel má ganga svo langt að segja að sjálfsmynd hverrar þjóðar speglist í listinni sem þar verður til.
Virðulegi forseti. Ég hitti einn af okkar fremstu listamönnum í gær, hann Víking Heiðar, og hann var einmitt að fara yfir hversu mikilvægt það hafi verið að hann hafi fengið listamannalaun eftir að hann lauk námi í Bretlandi. Hann var á listamannalaunum í þrjú ár. Það var alveg aðdáunarvert að heyra hvað hann gat framleitt mikið á þessum tíma og hvernig listamannalaunin lögðu algjöran grunn að því sem fór síðar í hönd hjá þessum listamanni. Það er ekki að sökum að spyrja heldur er auðvitað hans ferill með miklum ólíkindum og við getum verið virkilega stolt af honum.
Virðulegur forseti. Að loknu þessu stutta ágripi af sögu listamannalauna er rétt að fjalla um efnisatriði þess frumvarps sem ég mæli fyrir hér, auk annarra stuðningsaðgerða í þágu menningargeirans. Heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft afar mikil og neikvæð áhrif á einstaka atvinnugreinar en samkvæmt tölum Hagstofunnar dróst landsframleiðslan saman um 6,5% á árinu 2020. Samdráttur í verðmætasköpun í menningargeiranum, sérstaklega þeim greinum hans sem byggja tekjuöflun sína að mestu á viðburðahaldi, var gríðarlegur. Þannig voru greiðslur til rétthafa í tónlist vegna tónleikahalds á árinu 2021 87% lægri en samsvarandi tekjur árið 2019. Þessum samdrætti í tekjum einstakra atvinnugreina hefur verið mætt með almennum aðgerðum sem hafa gefið góða raun, líkt og m.a. var fjallað um í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra um mat á árangri aðgerða til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Því ákvað ríkisstjórnin að verja samtals 450 millj. kr. til viðspyrnuaðgerða í þágu menningargeirans og þar sem því var við komið var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á að styðja við ungt listafólk.
Rétt er að fjalla stuttlega um stuðningsaðgerðir til menningargeirans sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í. Í þágu tónlistargeirans var ákveðið að veita í heild 375 millj. kr. sem skiptast þannig að 150 millj. kr. viðbótarframlag er veitt til greiðslna til tónhöfunda. Til að bæta höfundum upp tekjutap vegna lægri höfundaréttargreiðslna af viðburðahaldi verða rétthöfum veittir styrkir í samstarfi við STEF. Launasjóður tónlistarflytjenda fær auk þess viðbótarframlag sem nemur 75 millj. kr. sem byggir á því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir. Lögð var sérstök áhersla á ungt tónlistarfólk þar sem þriðjungur fjárhæðarinnar er eyrnamerktur ungu listafólki undir 35 ára aldri. Tónlistarsjóður fær einnig 50 millj. kr. viðbótarframlag til að styðja við viðburðahald á árinu 2022 og stuðla þannig að öflugri viðspyrnu menningargeirans nú þegar viðburðahald fer að taka við sér á ný. Framlög í hljóðritasjóð munu aukast um 40 millj. kr. á þessu ári en samkvæmt fjárlögum á sjóðurinn að fá 39,2 millj. kr. á árinu og er því um tvöföldun að ræða. Sjóðurinn styður við útgáfu hljóðrita en mikið hefur verið tekið upp af tónlist á meðan á samkomutakmörkunum stóð. Þá fær útflutningssjóður tónlistar viðbótarframlag sem nemur 40 millj. kr. en sjóðurinn styrkir íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni á framfæri við stærri áhorfendahóp utan Íslands. Loks mun ÚTÓN fá 10 millj. kr. viðbótarframlag en ÚTÓN styður við útflutningsverkefni allra tónlistargeira. Tónverkamiðstöð mun einnig fá 10 millj. kr. viðbótarframlag en miðstöðin hefur það hlutverk að skrá og kynna íslenskt tónverk og gera þau aðgengileg til flutnings jafnt innan lands sem erlendis.
Virðulegur forseti. Í þágu sviðslistageirans er með frumvarpinu lagt til að starfslaunum listamanna í gegnum launasjóð sviðslistafólks verði fjölgað um 50 og þau viðbótarmánaðarlaun sérstaklega skilyrt við ungt sviðslistafólk undir 35 ára aldri. Þá mun sviðslistasjóður fá aukið fjármagn sem nemur 50 millj. kr. en sviðslistasjóður er verkefnasjóður sem styður við uppsetningu og starfsemi sviðslistaverka. Sérstakar úthlutanir munu fara fram vegna þeirra viðbóta sem lagðar eru til með frumvarpinu sem ég mæli hér fyrir. Nú þegar hefur verið úthlutað úr sviðslistasjóði á þessu ári og bættust við þá úthlutun 25 millj. kr. sem var helmingur þess sem ríkisstjórnin ákvað að auka við sjóðinn. Vegna fjölgunar listamannalauna til sviðslistafólks undir 35 ára aldri og 25 millj. kr. aukningar til sviðslistasjóðs verður sérstök úthlutun auglýst verði frumvarpið óbreytt að lögum. Lagt er upp með að gerðar verði tímabundnar breytingar á reglugerð um listamannalaun til að liðka fyrir skjótri úthlutun, m.a. með skemmri umsóknarfresti en almennt gerist sem í þessu tilviki er talið réttlætanlegt, enda er geirinn meðvitaður um þá viðbót sem í frumvarpinu felst. Svipað fyrirkomulag mun verða haft á með launasjóð tónlistarflytjenda. Vert er að nefna að nokkur viðbótarframlög sem ég fjallaði um áðan þarfnast ekki sérstakrar lagabreytingar til að komast til framkvæmda.
Virðulegi forseti. Líkt og ég nefndi í upphafi ræðu minnar er listsköpun gríðarlega mikilvæg fyrir þjóðina og mikilvægt að ríkisvaldið styðji við hana með myndarlegum hætti. Það á sérstaklega við nú þegar menningargeirinn er að taka við sér eftir afleit undanfarin ár.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpið gangi til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar.