listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra fyrir þetta góða frumvarp sem ég get ekki annað en fagnað því að ég hef beðið um þetta ásamt félögum mínum úr tónlistargeiranum í stóru og smáu. Ég veit að það að hafa verið í tveggja ára starfsbanni, eins og stéttin hefur verið að stórum hluta, hefur stefnt heill og hamingju fjölmargra einstaklinga og fjölskyldna í verulega hættu. Hér er sýnd viðleitni til þess að koma til móts við þá hópa sem ekki hafa haft margt um að velja í þessu viðvarandi banni. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort það sé ekki hennar mat að menningin sé hér auðvitað til menningarinnar vegna en einnig sé hún hluti af mikilvægri tekjuskapandi atvinnustarfsemi til langrar framtíðar.