152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:17]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góð orð í garð þessa frumvarps. Jú, ég er sannarlega sammála því að menningin og tónlistin og allar listgreinar sem eru innan vébanda menningarinnar séu geiri sem við þurfum að ýta enn frekar undir til að það séu fleiri störf innan geirans. Við erum með mjög góð áform í þá veru sem byggir á tónlistarstefnu sem var unnin á síðasta kjörtímabili og við ætlum að hrinda í framkvæmd í góðri sátt og samvinnu við tónlistargeirann.