152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:18]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég fagna líka þeim hugmyndum sem fram hafa komið um að gera starfsemi tónlistarlífsins á Íslandi markvissari og umgjörðina hagfelldari, m.a. hugmyndum um tónlistarmiðstöð sem verði með svipuðum hætti rekin og Kvikmyndamiðstöð. Tónlistarmenn á Íslandi hafa notið velgengni og það er talað um vegferð þeirra um víða veröld, farsæld, og stóru nöfnin á Íslandi hafa sennilega komist í gegnum þennan skafl þokkalega en ég fullyrði að stærstur hluti, sennilega um 90% íslenskra tónlistarmanna, er lágtekjufólk og á bara mjög erfitt líf. En ég held að það sé ágætt til að benda fólki á staðreyndir hér að af einu lagi, einnig bók, getur sprottið heilt leikrit, heil kvikmynd og heil sería og ég held að það sé verðugt að hafa í huga (Forseti hringir.) að þetta er eins og hver önnur nýsköpunarvinna sem þarfnast stuðnings og súrefnis og viðleitni til þess ber að fagna.