152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:20]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil bara nefna það hér að á síðasta kjörtímabili lögðum við sérstaka áherslu á bókmenntir og kvikmyndir. Við hófum endurgreiðsluferli., endurgreiðslur fyrir útgáfu á íslenskum bókum, og árangurinn er gríðarlegur. Við sáum strax á milli áranna 2018 og 2019 47% aukningu í útgáfu íslenskra barnabóka. Það var löngu tímabært að við færum í svona viðspyrnu. Það sama má segja um kvikmyndir. Við sömdum kvikmyndastefnu sem hefur líka verið mjög hjálplegt geiranum. Á þessu kjörtímabili munum við leggja áherslu á tónlist, hönnun og svo myndlist. Núna erum við með í drögum myndlistarstefnu. Við byggjum á tónlistarstefnunni frá síðasta kjörtímabili og þar erum við að hugsa um að setja á laggirnar tónlistarmiðstöð, eða ekki hugsa um heldur verður hún að veruleika, og við viljum að hún verði jafn öflug og Kvikmyndamiðstöðin sem hefur verið að skapa kvikmyndir og hundruð starfa á Íslandi.