listamannalaun.
Frú forseti. Loksins, loksins, sagði Kristján Albertsson eftir að hann las Vefararnn mikla frá Kasmír. Og loksins, loksins, sagði hæstv. ráðherra hér og er óhætt að taka undir það og óska henni til hamingju með þetta fyrsta þingmál nýs menningarráðuneytis. Það eru tveir mánuðir síðan þessar aðgerðir voru boðaðar og þetta var loksins lagt fram í byrjun mars og núna tekið á dagskrá í lok mánaðar.
Gott og vel. Mig langar aðeins að fá að heyra frá hæstv. ráðherra um praktíkina í þessu, hvaða aðferðafræði sé lagt upp með þegar valið er úr nýjum umsóknum um viðbótarstarfslaun. Verður horft til fyrri úthlutunar? Munu þeir sem þá fengu starfslaun eiga kost á að fá úthlutað fleiri mánuðum núna ef þeir sækjast eftir því? Verður yfir höfuð eitthvað hugað að þessu? Geta umsækjendur jafnvel lagt inn (Forseti hringir.) sömu umsókn og var send inn í vetur og fengið viðbótarstarfslaun á grundvelli hennar? Það eru einhver svona atriði sem ég væri til í að heyra aðeins frá ráðherra með.