listamannalaun.
Virðulegur forseti. Það er þannig að ráðherra er ekki að skipta sér af einstökum efnisatriðum í úthlutun. Það er stjórn listamannalauna, starfslauna listamanna, sem sér um það og fer út í slík smáatriði, enda tel ég ekki æskilegt að ráðherra sé með þannig afskipti. Ráðherra leggur línurnar eins og við erum að gera hér í dag. Við vitum að ungt listafólk hefur átt í sérstökum erfiðleikum og þess vegna erum við með áherslu á unga fólkið og ég vona að hv. þingmaður taki undir þá áherslu. Svo vil ég gjarnan benda hv. þingmanni á að það sem hefur verið að gerast er að við hækkuðum listamannalaunin. Þau eru komin núna í tæp 500.000 og þetta er hækkun upp á 17% sem átti sér stað í byrjun árs og þetta var löngu tímabær leiðrétting. Þannig að starfsemi ráðuneytis fer ekki öll fram hér í þingsal, (Forseti hringir.) til að upplýsa hinn unga þingmann.