listamannalaun.
Virðulegi forseti. Mér þykir vænt um að hinn ungi þingmaður sé upplýstur um þetta allt saman. En það er auðvitað þannig að í svona lögum þá þarf að leggja línurnar um það við hverju bæði úthlutunarnefnd og umsækjendur geta búist þegar lögin koma til framkvæmda. Þess vegna spurði ég um þetta atriði áðan.
Að öðru. Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins að það hafi ekki unnist tími til hefðbundins innra og ytra samráðs fyrir framlagningu frumvarpsins. Nú er, eins og ég nefndi áðan, langt síðan það var tilkynnt um stuðningsaðgerðir og væntanlega hefur verið hafin vinna við að leggja drög að þessu öllu saman og ástandið í þessum geira verður verst kannski í desember, janúar og fyrri hluta febrúar. Af hverju var ekki hægt að viðhafa formlegt og hefðbundið samráð við vinnslu þessa máls, þessa mánuði síðan þetta var boðað?