listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég hugsa að við höfum verið býsna hógvær í greinargerðinni þegar við sögðum að við hefðum ekki getað verið í hefðbundnu samráði vegna þess að við vorum í raun og veru í mjög miklu samráði. Við vorum í samráði við STEF í samráði. Við vorum í samráði ÚTÓN. Við vorum í samráði við stjórn listamannalauna og við vorum í samráði við BÍL. Eins og ég held að hv. þingmaður taki eftir er þetta einstaklega vel smíðað frumvarpi. Við tökum á öllum helstu þáttum og ég er mjög stolt af því hvernig við förum í þetta. Það sem hefur verið að gerast í menningargeiranum er að mér sýnist að þegar við berum okkur saman við Norðurlöndin þá verði Ísland það ríki sem hefur stutt mest við menningu og íþróttir í gegnum Covid. Við gerðum það að algjöru markmiði í Covid að mynda svokallaða efnahagslega loftbrú og passa upp á að það væru fleiri börn sem stunduðu íþróttir eða stunduðu tónlistarnám eftir að faraldrinum lyki og það er að takast.