152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:27]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir framlagningu þessa frumvarps sem var eiginlega orðið löngu tímabært og ég tek undir þau orð sem hafa fallið hér um að loksins sé það komið fram. Við erum með upphæðina 450 milljónir. Það er auðvitað bara afstæð tala og dreifist á ansi marga. Hér voru nefndir tónlistarhöfundar, lánasjóðir, tónlistarsjóður, hljóðritasjóður, útflutningssjóður, ÚTÓN og hvaðeina, þannig að það eru margir aðilar sem munu njóta góðs af þessu en maður veltir fyrir sér upphæðinni sem slíkri. Það sem ég myndi vilja spyrja um hér varðandi það að þetta séu 240 styrkir eða starfslaun versus 330, þar af 50 til yngri en 35 ára: Ef það sækja fleiri en 50 yngri en 35 ára um styrk, fá þeir þá ekki styrk? Mun þetta geta flætt á milli ef það sækja færri en 50 (Forseti hringir.) undir 35 ára um styrk, færist það þá upp fyrir? Er einhver sveigja í þessu?