152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:28]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil ítreka að þegar við fórum í þessar stuðningsaðgerðir, þessar aukastuðningsaðgerðir, af því að við vorum auðvitað búin að fara í mjög umfangsmiklar aðgerðir áður en við komum með þennan í loka- eða aukaaðgerðapakka til handa tónlist og sviðslistum, þá gerðum við þetta þannig að þetta er sérsniðið að þeim greinum sem verst urðu úti. Ég get upplýst þingheim um að við vorum tilbúin til að þessi tala yrði hærri en eftir að hafa farið mjög gaumgæfilega yfir málið og í miklu samráði við greinina var þetta niðurstaðan. Varðandi þennan sveigjanleika þarf ég bara að leita mér frekari upplýsinga áður en ég get svarað hv. þingmanni um það.