listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil hér í þessum ræðustól hrósa ríkisstjórninni fyrir að hafa þó gripið til þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til þótt að ég hafi talið fyrirséð fyrir áramót að við þyrftum að grípa til þeirra. Það er einn hópur sem hv. þm. Jakob Frímann Magnússon hefur nefnt hér í ræðustól og það er fólkið á bak við tjöldin, sem er stór hópur. Ég á vini sem hafa unnið sem „mixer“-menn eða verið á bak við tjöldin, ljósamenn, og verið að gera hvaðeina til að halda tónleika eða standa fyrir viðburðum. Þessir aðilar hafa fallið á milli skips og bryggju og hafa verið að lepja dauðann úr skel frá því að Covid byrjaði. Mér finnst einhvern veginn eins og það vanti að horfa til þessa hóps, (Forseti hringir.) fólksins sem starfar á bak við tjöldin.