152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:31]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni að þó að ég komi hér og segi að við séum mjög stolt af þessum aðgerðum þá eru þær svo sannarlega ekki hafnar yfir gagnrýni. Eftir að svona mikið áfall dynur á ákveðnum greinum þá þurfum við auðvitað líka, eins og hv. þingmaður nefnir, að líta á aðgerðir með gagnrýnum augum. Eru einhverjir sem við misstum af? Við þurfum þá bara að horfa á það. Eins og ég segi var markmiðið allan tímann að fylgjast mjög vel með börnum og ungu fólki í íþróttum, tónlistarnámi og skoða: Verður mikið brotthvarf á þessu tímabili? Ef svo er hefur þetta ekki tekist eins vel og við ætluðum. En fyrstu vísbendingar benda til þess að við höfum náð að halda öllum inni, bæði í íþróttum og tónlist, enda kom ríkisvaldið mjög vel að þeim málum. Hafandi sagt það þá ítreka ég að við eigum engu að síður að fara yfir þessar aðgerðir á gagnrýninn hátt og rýna þær.