listamannalaun.
Forseti. Ég hef helst athugasemdir við árið 2022 í þessu, sérstaklega þegar maður horfir til þess hvernig farið hefur verið með tímabundnar auknar fjárheimildir í þennan málaflokk sem hafa verið notaðar til að hækka listamannalaun, sem er gott og vel. En það er tímabundin hækkun sem þýðir að ef tímabundna hækkunin heldur ekki áfram þá fækkar samningunum eða mánaðarlaununum. Þarna er kannski eitthvað verið að koma til móts við það. En þetta á bara við 2022, sem er árið í ár, einn fjórði af því ári er að verða búinn. Mig langar til að spyrja ráðherra: Mun eitthvað svipað þessu koma í fjármálaáætlun 2023–2028?