152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:33]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Það skiptir mestu máli núna varðandi starfslaunakerfið að við erum að fara í ákveðna endurskoðun. Við þurfum að huga betur að unga fólkinu og þeim sem eldri eru og ég mun á næstunni kynna talsverðar breytingar á starfslaunakerfinu, sem tengist í raun breyttri lýðfræðilegri samsetningu þjóðarinnar. Ég er því að boða heildarendurskoðun sem ég hef verið að vinna mjög náið með Bandalagi íslenskra listamanna, verið að reyna að kanna hvernig við getum gert þetta betur. Varðandi fjölgun þá sjáum við hana ekki strax. En það sem ég legg áherslu á er að launin haldi líka verðgildi sínu. Eitt af því sem mér hefur þótt mjög miður er að málefnasvið 18 hefur ekki verið verðbætt. Ég mun leggja gríðarlega áherslu á að við klárum allt það sem tengist menningunni á kjörtímabilinu. Við verðum að stíga eitt skref í einu, en ég er hins vegar á því að fjölga þurfi starfslaunum listamanna vegna þess að við höfum ekki gert það í langan tíma.