listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég veit að ekki er búið að birta fjármálaáætlun en það hlýtur að vera búið að loka henni. Hún ætti að birtast okkur í allra síðasta lagi eftir viku eða svo. Hún er í raun tilbúin, ætti bara að fara í prentun, pdf-skjalið eða umbrotsskjalið sem sent er í prentsmiðjuna og þess háttar. Mér finnst því eðlilegt að spyrja um þessa tímabundnu aukningu sem var ekki endilega í þessu frumvarpi heldur líka í fjárlögum fyrir árið 2022: Erum við að missa þá tímabundnu aukningu á næsta ári? Þetta er Covid-aðgerð, það er verið að gefa aðeins í, sem er áhugavert, sérstaklega þegar maður vonast til þess að tækifærum sé að fjölga óháð tilkomu nýsköpunarstyrkja frá ríkinu. Þannig að ef tímabundna aðgerðin frá 2022 hverfur, og ekki bara það; ef tímabundnu framlögin sem voru á fjárlögum 2022, í desember, hverfa líka þá er það eitthvað sem við ættum að vita um upp á framtíðina að gera.