listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir góða og innihaldsríka ræðu sem ég skal viðurkenna að kom mér ánægjulega á óvart. Mín upplifun af hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sérstaklega og hv. þingmönnum Miðflokksins, sem eru flokkar sem hv. þingmaður hefur tilheyrt, hefur verið sú að þeir séu í eðli sínu mótfallnir listamannalaunum, finnist þau einmitt vera, eins og hv. þingmaður kom inn á, ölmusa og finnist það einhvers konar niðurlæging að hafa fengið listamannalaun. Ég upplifi það líka hér á þingi að spurningar um hvort hv. þingmenn hafi fengið listamannalaun séu notaðar til að reyna að gera lítið úr málflutningi viðkomandi. Þetta viðhorf sem hv. þm. Birgir Þórarinsson lýsir er að einhverju leyti ríkjandi hér inni, að þetta sé einhvers konar ölmusa, óþarfi og að það vanti eitthvað upp á hjá þeim sem sækjast eftir því að fá listamannalaun. Ég er hins vegar sammála hv. þingmanni að listamannalaun eru mikilvæg til að efla listir og menningu og mér finnst að við mættum gera betur. Raunar lít ég svo á að það búi listamaður í okkur öllum ef ekki flestum og ef við byggjum við aðeins hagfelldara efnahagskerfi, þar sem grunnþörfum allra væri mætt, væri töluvert meira um sköpun hér. Ef við þyrftum ekki stöðugt að vera týnd í brauðstritinu gætum við farið að einbeita okkur að því að skapa.
Hv. þingmaður talaði um þetta aldursviðmið. Hann var að velta fyrir sér hvað lægi að baki því að skilyrða ákveðinn hluta af mánaðarlaununum við fólk sem er undir 35 ára aldri. Ég vil spyrja hvort hv. þingmaður sé samt ekki sammála því að mikilvægt sé að tryggja að ungt fólk hafi aukin tækifæri til að fá listamannalaun.