listamannalaun.
Virðulegi forseti. Bara til að hafa það alveg á hreinu þá taldi ég hv. þingmann ekki vera þeirrar skoðunar að listamannalaun væri einhvers konar ölmusa eða óþarfa, enda skein í gegn í ræðu hans að hann styddi listamannalaun og vildi veg lista og menningar sem mestan þannig að það sé bara algerlega á hreinu. Við hv. þingmaður erum sammála um það. Við vorum að ræða um unga fólkið og ég ætla aðeins að nýta ferðina vegna þess að mér tókst ekki að komast að í andsvör við hæstv. ráðherra hér áðan og langaði að benda á ákveðið atriði sem ég væri til í að ræða við hv. þingmann líka vegna þess að ég held að það sé bara mjög mikilvægt að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hafi þetta til skoðunar. Það er orðalag a- og b-liðar í 1. gr. Þar kemur fram um mánaðarlaunin, með leyfi forseta, „af þeim skulu 50 mánaðarlaun ætluð sviðslistafólki undir 35 ára aldri“ og það sama segir um tónlistarflytjendur undir 35 ára aldri. Gott og vel. Mér finnst mjög gott að setja svona inn til að laða ungt fólk að borðinu; það hefur vissulega verið mjög erfitt fyrir ungt fólk að fá úthlutað úr þessum sjóðum. Það hefur verið talað um ákveðið óréttlæti í því sambandi, að það halli á ungt fólk í þessum umsóknum. En þá velti ég fyrir mér hvort ekki þurfi að bæta orðalagið þannig að það komi fram að það skuli að lágmarki 50 fá, til að fyllstu sanngirni sé gætt, því að það eru mögulega fleiri en 50 undir 35 ára aldri sem eiga skilið listamannalaun. Mér líður svolítið eins og verið sé að setja ákveðið þak á þetta líka. Ég átta mig á því að eflaust hefur það verið lægra fram að þessu. En ég velti fyrir mér hvort tilgangurinn sé raunverulega að setja þak á þetta. Ætti tilgangurinn a.m.k. ekki frekar að vera að setja gólf þarna?