listamannalaun.
Virðulegi forseti. Það er afar ánægjulegt að sjá hversu ört íslenskt menningarlíf hefur vaxið á undanförnum árum og hefur ríkisstjórnin lagt áherslu á að styðja sérstaklega við menningarlíf í ljósi heimsfaraldurs þar sem listamenn hafa orðið fyrir allt að 87% tekjufalli. Farið var í viðspyrnuaðgerðir sem m.a. fólu í sér tímabundna fjölgun listamannalauna og listamönnum var bætt tekjufall og framlög í ýmsa sjóði menningar voru hækkuð, sem var mikilvægt. En íslenskt menningarlíf er okkur öllum mikilvægt og á aldrei að mæta afgangi. Því er það frumvarp sem við ræðum hér mikið fagnaðarefni. Frumvarpið er hluti af viðspyrnustefnu ríkisstjórnarinnar í þágu öflugrar menningar, ef svo má að orði komast. Þá má sérstaklega benda á þann stuðning sem frumvarpið tryggir ungum og upprennandi listamönnum, eins og hefur komið fram hér í máli þingmanna áður en það er gríðarlega jákvætt að styðja sérstaklega við ungt fólk, með sérflokki listamannalauna, listamenn sem eru að koma fram á sjónarsviðið, efla list sína og láta ljós sitt skína og segja má að séu framtíð íslenskrar menningar. Þessa listamenn viljum við efla og hvetja áfram í sinni frumsköpun og tryggja þeim sterkari umgjörð svo að hæfileikar þeirra njóti sín enn frekar. Öflugt lista- og menningarstarf er nefnilega til ávinnings fyrir samfélagið allt og er orðið órjúfanlegur hluti af þeim lífsgæðum sem við viljum hafa í kringum okkur á degi hverjum.
Í þessu samhengi vil ég nýta tíma minn hér í ræðupúlti til að hvetja hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra áfram í sinni góðu vinnu í þágu menningar. Á síðasta kjörtímabili steig ráðherra stór skref í þágu allra listgreina, hvort sem það eru sviðslistir, kvikmyndir, bókmenntir eða annað, og er það von mín að við höldum áfram á þeirri braut og gerum öflugt menningarlíf enn betra.