listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, fyrir þetta mikilvæga frumvarp. Við höfum, eins og fram hefur komið í máli annarra þingmanna, verið í mjög sérstökum aðstæðum síðustu tvö ár sem hafa komið mjög hart niður á lista- og menningarlífi almennt. Ég vil kannski sérstaklega draga það hér fram og hrósa fyrir að það sé búið að skilyrða sértækan stuðning fyrir unga listamenn. Staðan er nefnilega þannig að ungt listafólk hefur óskað eftir því að komast að og hér er verið að bregðast við því. Þau hafa verið ólíklegri til að hljóta styrki vegna þess að þau hafa almennt ekki sömu reynslu og þau sem eldri eru og það getur þar af leiðandi auðvitað bitnað á, hvernig sem við orðum það, gæðum umsókna og líkindum á því að viðkomandi hljóti styrk. Í frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að skilyrða að 50 mánaðarlaun séu ætluð ungu sviðslistafólki undir 35 ára aldri og 50 mánaðarlaun séu ætluð ungum tónlistarflytjendum undir 35 ára aldri. Megintilgangur framangreinds skilyrðis er að efla unga listamenn sem oft eru að stíga sín fyrstu skref eftir nám eða að hefja feril sinn. Með þessu er gagnrýni um að lítil nýliðun sé innan listamannalaunakerfisins mætt.“
Þetta er mikilvægt og kemur, eins og sagt er, til móts við ákall ungs listafólks.
Ég vil þessu til viðbótar blanda öðrum þætti hér inn í. Það kemur fram í greinargerð með frumvarpinu að samdráttur í verðmætasköpun í menningargeiranum, og þá sérstaklega þeim greinum hans sem byggja tekjuöflun sína á viðburðahaldi, hafi verið gríðarlegur í gegnum faraldurinn. Við sjáum það einfaldlega á menningarhúsunum okkar hér um allt land að þau hafa fundið verulega fyrir þessu höggi þar sem gestum hefur fækkað, auðvitað, bæði innlendum og erlendum gestum, og þetta hefur haft veruleg áhrif á starfsemi þeirra. Auðvitað er það svo að rekstri menningarhúsa sem slíkra hefur verið mætt með öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. En það högg er auðvitað afleiðing þess að ekki hefur verið hægt að koma fram og framkvæma list sína, ef svo má segja, og þess vegna fagna ég frumvarpi ráðherra mjög.
Ég vil jafnframt nýta þetta tækifæri og tala um hinn anga síðustu viðspyrnuaðgerða ríkisstjórnarinnar í þágu menningar þar sem fjármunum var varið til ýmissa sjóða á sviði tónlistar og sviðslista, t.d. var útflutningssjóður tónlistar efldur sérstaklega með 50 millj. kr. framlagi sem eykur getu okkar frábærra tónlistarfólks til að sækja fram á erlendri grund og kynna list sína ásamt auðvitað landi og þjóð í leiðinni. Ég held, virðulegur forseti, að þetta sé mjög spennandi og auki líkurnar á að fleira íslenskt tónlistarfólk nái lengra á alþjóðlegum mörkuðum með tilheyrandi verðmætasköpun fyrir þjóðina alla. En hér er gott mál og við eigum að halda áfram á þessari braut og ég hef fulla trú á því að ráðherra menningarmála muni sinna því.