152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[16:21]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að ræða aðeins um þátt í greinargerð með frumvarpinu er snýr að mati á áhrifum. Það er síðasti kaflinn þar sem segir, með leyfi forseta:

„Varðandi áhrif á lýðheilsu, stöðu tiltekinna þjóðfélagshópa og samfélagslegan ávinning má gera ráð fyrir að fjölgun mánaðarlauna til listamanna muni bæta afkomu þeirra sem fá úthlutun og samfélagið njóti afrakstursins.“

Gott og vel. Þetta er ágætisútlistun á því að samfélagið njóti góðs af listum og þetta er kannski smátilvísun í velsældarvísa sem hæstv. ríkisstjórn kynnti með pompi og prakt, og sagðist ætla að setja í forgang að innleiða. Mér finnst þetta, eins og með svo margt annað, svolítil eftirágreining og hefði í raun mátt vera ráðandi við alla áætlunargerð. Ég velti fyrir mér hvort við megum eiga von á því að sjá þetta gert meira fyrir fram frekar en eftir á í þeim frumvörpum sem munu koma frá stjórnarmeirihlutanum, og þá sér í lagi með fjármálaáætluninni. Væri ekki rétt að þessi velsældarsjónarmið, sem mikið er rætt um erlendis að séu innleidd hér, væru sett á dagskrá fyrir frumvörpin en ekki eftir að þau hafa verið samin en þá er lagt einhvers konar mat á hvaða áhrif þau hafi? Að það sé talað um hvaða markmiðum við viljum ná og síðan séu málin sett fram til að ná þeim markmiðum en ekki að málin séu sett fram og síðan rætt hvaða áhrif eða hliðaráhrif þau geta haft á þessi markmið.