listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Varðandi þessa tilteknu setningu þá held ég að heilt yfir sjáist að menningarlíf er mikilvægt. Við sjáum hvaða áhrif öflugt menningarlíf hefur í litlu samfélögunum úti um allt land, varðandi afleidd störf og allt sem þetta gefur samfélögunum, til að mynda hvað varðar rekstur veitingahúsa. Menningarlíf hefur jákvæð áhrif á þessi samfélög og skiptir alveg gríðarlegu máli.
Það má líka draga það fram að í þessu felst öryggi. Ég heyrði að í öðru andsvari kom hv. þingmaður inn á það öryggi sem þetta felur í sér en þetta eykur möguleika ungs listafólks á að stunda sína listsköpun sem hefur jákvæð áhrif á andlega heilsu og heilsu almennt. En ég get tekið undir það með hv. þingmanni að víða má gera betur þegar kemur að greiningum sem þessum. Ég ítreka, svo að ég fari aftur í efnisatriði þessa frumvarps, að frumvarpið er gott og ég held að það sé mjög jákvætt skref sem ráðherra er að stíga.