152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[16:25]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er ekki viss um að við höfum verið að tala um alveg sama hlutinn. Svo að ég kannski útskýri fyrir hv. þingmanni hvað ég á við með þessum velsældarmælikvörðum, vegna þess að þeir virðast ekki alveg vera skýrir í huga hv. þingmanns, þá er ég að tala um mælikvarða sem snúa einmitt að einhverju öðru en nákvæmum efnahagslegum afleiðingum aðgerða. Það er vissulega rétt að listir og menning hafa í för með sér víðtækan efnahagslegan ábata, um það er ekki deilt. Aftur á móti er það yfirlýst stefna þessarar ríkisstjórnar að beita í auknum mæli fleiri mælikvörðum en einungis efnahagslegum ávinningi af ákveðnum aðgerðum við stefnumótun, við mótun aðgerða, við ákvörðun um hvað skuli sett í forgang og hvers vegna. Spurning mín sneri að því hvort það væri einhver meðvitund um þetta innan stjórnarliðsins og ég er svona að fá ákveðna tilfinningu fyrir því.

Þetta er bara ákveðin tilhneiging sem ég hef tekið eftir. Við eigum t.d. að leggja mat á hvaða áhrif aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa, hvaða áhrif lagasetning hefur á jafnrétti kynjanna. Það hefur verið mín reynsla, mín upplifun, að það mat fari fram eftir á. Ríkisstjórnin gerir það sem hún vill gera og leggur síðan mat á hvernig það fer með kynin. Hvort sem það er jákvætt eða neikvætt fyrir jafnrétti kynjanna eða ekki þá er bara lagt mat á það og það er sett inn í mat á áhrifum. Það er náttúrlega ekki þannig sem þetta er hugsað. Hugsunin er sú að við eigum að setja okkur einhver markmið, um að aðgerðir séu til þess fallnar að efla jafnrétti kynjanna, og svo að aðgerðir séu til þess fallnar að efla velsældarvísana. Síðan á að reyna að mæta þeim markmiðum og það á að gera grein fyrir því hvernig það er gert í hverju frumvarpi fyrir sig.

Ég var aðeins að setja út á það að þetta er alltaf gert eftir á. Í staðinn fyrir að leyfa þessu að ráða för er lagt mat á hvaða áhrif þetta hafi og þá skipta þessir mælikvarðar í raun engu máli.