listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skal bara viðurkenna að þetta er eitthvað sem ég þyrfti að skoða aðeins betur. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að þetta þurfi ávallt að vera til staðar. Ég vil líka vekja athygli á því að í mati á áhrifum er talað um jafnrétti kynjanna. Eins og kom fram í ræðu minni áðan var ég að fagna því sérstaklega að búið væri að skilyrða 50 mánaðarlaun til ungs sviðslistafólks og einnig önnur 50 mánaðarlaun sem ætluð eru ungum tónlistarflytjendum undir 35 ára aldri. Ég verð bara að leyfa mér, hæstv. forseti, að taka undir með þingmanninum.