152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[16:42]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég er mikil áhugamanneskja um velsældarvísanna og tók þátt í starfshópi á vegum forsætisráðherra þar sem við vorum að móta þessa mælikvarða þannig að mér finnast þetta mjög áhugaverðar pælingar hjá hv. þingmanni. Þegar við vorum að setja fram þessa vísa þá vorum við að horfa á félagslega þáttinn og auðvitað líka á efnahagslega þáttinn, hefðbundinn hagvöxt og þess háttar, og svo umhverfisþáttinn. Það kom í ljós í þeirri vinnu að okkur vantaði kannski frekari mælikvarða hvað umhverfisþáttinn varðaði og höfum beint því til ríkisstjórnar að það þurfi að huga að því. En stóra málið var auðvitað að mælikvarðarnir væru til staðar. Þegar við erum að tala um þetta frumvarp sem hér er undir þá getum við held ég öll verið sammála um mikilvægi listar og menningar og við sjáum það í aðgerðum ríkisstjórnarinnar og einmitt í því að hæstv. ráðherra gegnir þeirri stöðu sem hún gegnir í dag. Við erum að horfa á skapandi greinar og listir og menningu, líka út frá þessu hagsældarsjónarmiði, hvernig við sköpum atvinnu fyrir fólk og sköpum raunveruleg verðmæti með list og menningu sem eru mæld í fjárhagslegum ávinningi þótt það sé líka annars konar ávinningur. Þannig að það sem ég vil kannski spyrja hv. þingmann um er hvort hún sé með einhverjar hugmyndir að því hvernig við gætum mælt þetta í vísunum sem við settum því að ég get ekki séð að við höfum farið í þetta. Við tölum um samfélagslegan auð, það að fólk geti tekið þátt í félagslífi, íþróttastarfi og menningarlífi og það er eitthvað sem við getum mælt, eru til mælingar yfir, og svo erum við með atvinnuþáttinn og hvort tveggja tengist kannski svolítið því máli sem hér um ræðir. En ég velti fyrir mér hvort við gætum gengið enn lengra í þeim efnum.